Vill eignarnám og niðurfærslu lána 30. apríl 2009 04:00 Talar máli neytenda. Gísli Tryggvason hefur sent forsætisráðherra ítarlegar tillögur sínar til lausnar vanda heimilanna. Fréttablaðið/anton
Talsmaður neytenda telur að ríkið ætti að taka öll lán, önnur en lán Íbúðalánasjóðs, eignarnámi og niðurfæra síðan hluta þeirra í samræmi við mat sérstaks gerðardóms. Þetta kemur fram í ítarlegum tillögum sem Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Gísli leggur til að húsnæðislán annarra stofnana en Íbúðalánasjóðs verði færð til ríkisins og kröfuhöfum bætt tjónið eftir almennum reglum. Síðan verði gerðardómur skipaður fulltrúum bæði skuldara og kröfuhafa og hann fái það lögbundna hlutverk að taka bindandi ákvörðun um hvaða íbúðalán skuli færð niður, hve mikið og hvernig það skuli gert. Það geti verið misjafnt eftir tegund og stöðu láns eða aðstæðum lántakenda. Niðurfellingin skuli ekki vera skattskyld. Gísli segir kjarna málsins vera þann að neytendur – einkum skuldarar íbúðalána – muni að óbreyttu einir bera skellinn af efnahagskreppunni í stað þess að deila byrðinni með kröfuhöfum. Ábyrgð lánveitenda sé hins vegar meiri en svo að hægt sé að réttlæta þá niðurstöðu. Gísli telur forsendur fyrir lánasamningum að mestu brostnar. Neytendur hafi verið blekktir við gerð lánasamninga, enda hafi þeir ekki haft forsendur til að meta ástandið í efnahagsmálum – ólíkt lánveitendum. Einkum sé hæpið að samningar um gengis- og verðtryggð lán standist, enda hafi ekki mátt gera ráð fyrir kerfishruni eins og því sem hér varð og áhrifum þess á verðbólgu og gengi. Enn fremur telur Gísli hugsanlegt að lánveitendur og ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart lánþegum með því að bregðast ekki af nægum krafti við aðstæðum og blekkja jafnvel almenning með því að halda upplýsingum leyndum. Þá kunni eigendur lánafyrirtækja að vera skaðabótaskyldir hafi þeir unnið gegn gengi íslensku krónunnar. - sh
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira