Innlent

Vill að Landsbankinn biðji um Borgunarpeningana

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Elín segir Borgunarmáið „alveg ótrúlegt klúður og með ólíkindum að bankinn skuli hafa staðið að málum eins og raun ber vitni“.
Elín segir Borgunarmáið „alveg ótrúlegt klúður og með ólíkindum að bankinn skuli hafa staðið að málum eins og raun ber vitni“. Vísir/Daníel
Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokks, spurði að því á þingi í morgun hvers vegna Landsbankinn fari ekki fram á að þeir sem keyptu Borgun af bankanum skili þeim hagnaði sem verður til vegna yfirtöku Visa Inc. á Visa í Evrópu. 

„Væri það ekki hið eina rétta og sanna niðurstaða í þessu máli að hluthafahópurinn mundi einfaldlega endurgreiða bankanum þá peninga sem með réttu hefðu átt að koma í hans hlut og bæta þannig almenningi þennan skaða?“ spurði hún eftir að hafa rifjað upp sögu frá því að hún var ung stúlka með sparisjóðsbók í Landsbankanum Austurstræti sem fékk of mikið þegar hún tók út af bókinni eitt sinn.

„Þegar ég kom heim með peningaumslagið var hringt úr bankanum og mér tjáð að þeir hefðu gert mistök, ég hefði fengið of mikið af peningum í minn hlut og ég var beðin um að koma strax og skila þeim. Það fannst mér alveg sjálfsagt mál og fór undir eins í bankann og skilaði peningunum.“

Elín sagði að henni hefði dottið þessi saga úr æsku sinni í hug þegar Borgunarmálið kom upp „sem er alveg ótrúlegt klúður og með ólíkindum að bankinn skuli hafa staðið að málum eins og raun ber vitni“, eins og hún orðaði það í ræðu sinni.

Sagði hún að söluferlið ætti að vera galopið og gegnsætt þegar eignir ríkisins eða ríkisbanka væru annars vegar og gagnrýndi að ekki hafi verið gerður fyrirvari í samningi við nýja eigendur Borgunar um hugsanlega yfirtöku Visa á Visa Europe, líkt og gert var varðandi hlut Landsbankans í Valitor þegar hann var seldur Arion banka.

„Hvers vegna fer bankinn ekki fram á að peningnum verði skilað vegna þeirra mistaka, eins og forðum?“ spurði hún. Að lokum sagði Elín að henni þætti rétt að Bankasýslan léti fara fram óháða rannsókn á Borgunarsölunni sem fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×