Lífið

Vill að Kim hætti í þættinum

Rapparinn Kanye West er sagður vilja að eiginkona sín, Kim Kardashian, hætti í raunveruleikaþættinum Keeping Up with the Kardashians.

Hjónin sem eiga saman 15 mánaða gömlu dótturina, North West, eru að fara flytja inn í nýtt hús í Los Angeles. Kanye vill ekki að myndavélarnar fylgi þeim í nýju híbýlin og vill þess vegna að Kim hætti í þáttunum. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda en tökur standa yfir á tíundu þáttaröðinni.

Kris Jenner, móðir Kim, er ekki sammála rapparanum og vill að dóttirin haldi áfram. Hún vill að Kim skrifi undir samning fyrir næstu þáttaröð og vill meina að hún geti farið fram á dágóða launahækkun. Samkvæmt vefsíðunni RadarOnline.com er Kim sögð vera að íhuga stöðu sína og vilji jafnvel minnka aðkomu sína í þættinum vegna þrýstings frá eiginmanni sínum.

Kim er þekktust fjölskyldumeðlima og því myndi það líklega skaða þáttinn töluvert ef hún yrði ekki með. „Kim er eina ástæðan fyrir að fólk horfir á þáttinn. Það vita það allir, þannig það verður að vera allt eða ekkert,“ segir heimildarmaður RadarOnline. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×