Innlent

Vill að Gunnar Bragi sanni fullyrðingar um að hvalveiðar skaði ímynd þjóðarinnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, vill að utanríkisráðherra sanni fullyrðingar sínar þess efnis að hvalveiðar skaði ímynd íslensku þjóðarinnar á alþjóðlegum vettvangi. Þá segir hann fráleitt að tala um að þær hafi áhrif á viðskiptahagsmuni landsins.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær mikilvægt væri að ná samstöðu um hvalveiðar Íslendinga. Ljóst sé að draga þyrfti úr þeim því þær hafi áhrif á ímynd íslensku þjóðarinnar. Jón Gunnarsson er þessu ósammála.

„Því hefur verið haldið fram síðan við hófum hvalveiðar hér fyrir nokkuð mörgum árum síðan að þetta hafi átt að skaða mjög hagsmuni Íslands, bæði einhverja svokallaða ímynd og eins á útflutningsiðnað okkar og ferðaþjónustu. Það hefur ekkert af þessu að mínu mati gengið eftir og hvalveiðar hafa bara verið hér stundaðar og af því hafa skapast mikil og verðmæt störf,” segir Jón.

„Ég tel ekki að það muni skipta neinu máli í þessu stóra samhengi hvort þú sért að veiða hundrað hvali eða fimmtíu hvali,” segir hann. Jón segist ekki ætla að boða utanríkisráðherra á fund atvinnuveganefndar, en ætlar að krefja hann svara um málið.

„Ég vil fá að sjá einhverja kortlagningu á því hvar þetta á sér stað. Ef hann telur sig eiga erindi við okkur með einhverjar nýjar upplýsingar á þessum vettvangi sem eiga erindi við atvinnuveganefnd þingsins þá að sjálfsögðu munum við hitta hann en ég bara tel að hann verði að gera betur grein fyrir sínu máli og því sem hann er að leggja á borðið núna.”

Þá segir hann afleitt að Gunnar Bragi telji hugsanlegt að Ísland hafi ekki fengið aðild að samkomulagi ríkjanna fimm; Bandaríkjunum, Rússlands, Grænlands, Noregs og Kanada sökum hvalveiða.

„Það stenst enga skoðun að mínu mati. Ég vil fá að sjá eitthvað ábyggilegra um þetta og hvaða samningsmarkmið ráðherrann er að vitna til og hvaða samningum hann telur sig geta náð innan alþjóðahvalveiðiráðsins. Ég tel það stórfrétt ef okkar utanríkisráðherra hefur einhverja formúlu til að ná sátt við þann helming af þjóðum innan alþjóðahvalveiðiráðsins sem andvígt hvalveiðum,” segir Jón.

Gunnar Bragi sagði í gær að mikilvægt væri að ná samstöðu um hvalveiðar.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×