Innlent

Vill að fleiri fangar fái að afplána heima

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Ómar Örn með ökklabandið Þetta tæki sparar samfélaginu nokkra fúlgu og bætir aðstæður þeirra sem hafa afvegaleiðst í réttarríkinu. Fréttablaðið/Daníel
Ómar Örn með ökklabandið Þetta tæki sparar samfélaginu nokkra fúlgu og bætir aðstæður þeirra sem hafa afvegaleiðst í réttarríkinu. Fréttablaðið/Daníel
„Þetta hefur gengið alveg glimrandi og ég á von á því að þetta verði rýmkað frekar,“ segir Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Í október 2011 tók gildi breyting á lögum um fullnustu refsinga sem gerði föngum kleift að afplána síðasta hluta refsingar sinnar heima undir eftirliti. Í apríl 2012 var fyrsta ökklabandið fest á fanga og er forstjórinn svona líka ánægður með árangurinn.

„Þetta sparar þjóðfélaginu náttúrulega heilmikið en svo er þetta bara eðlileg framþróun í þessum málefnum. Það bætir engan að vera innilokaður.“

Hann sér fyrir sér að nota megi álíka tækni í tilfellum þar sem fólk er í nálgunar- eða farbanni. Undir það tekur Ómar Örn Jónsson, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Öryggismiðstöðinni.

„Þetta er notað í slíkum tilfellum erlendis og jafnvel þegar um kynferðisafbrotamenn er að ræða. Tæknin og þekkingin er til hérlendis þannig að hvað það varðar þá er ekkert því til fyrirstöðu að taka þetta upp hérlendis.“

Það er Öryggismiðstöðin sem leggur til ökklabandið og sér um viðhald þess en fangaverðir vakta fangana. Að sögn Páls eru nú um tíu fangar með slík bönd.

Lögin virka þannig að sá sem hlotið hefur eins árs óskilorðsbundinn dóm getur afplánað síðasta mánuðinn undir þessu eftirliti. Sé dómurinn fimm ár getur hann afplánað fimm mánuði með þessum hætti og svo framvegis. Lengst er hægt að afplána átta mánuði ökklabundinn í samfélaginu. Skýr skilyrði eru fyrir því að nýta þetta úrræði. Til dæmis má fanginn ekki hafa brotið gegn börnum. Einnig má hann ekki eiga útistandandi mál hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum.

Ökklabandið gerir vörðum ekki kleift að sjá ferðir fangans en það nemur ef hann er á dvalarstað sínum á þeim tímum sem hann skuldbindur sig til að vera þar. Það er að segja um kvöldmatarleyti og svo frá ellefu að kvöldi (níu á helgarkvöldum) til sjö í aftureldingu.

Fangar virðast sækja sífellt meira út í samfélagið. Til dæmis var á vorönn slegið aðsóknarmet þeirra í nám en 70 fangar eru nú í fjarnámi, þar af stunda fjórir háskólanám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×