Innlent

Vilja tvær milljónir vegna handtakna í Gálgahrauni

Samúel Karl Ólason skrifar
Ómar Ragnarsson er einn þeirra tíu sem höfðað hafa skaðabótamál gegn ríkinu.
Ómar Ragnarsson er einn þeirra tíu sem höfðað hafa skaðabótamál gegn ríkinu. Vísir/GVA
Tíu mótmælendur sem handteknir voru í Gálgahrauni 21. október 2013 hafa höfðað skaðabótamál gegn ríkinu vegna ólögmætra handtakna, frelsissviptinga og vistuna í fangaklefum. Hvert þeirra fara fram á tvær milljónir króna í skaðabætur. Níumenningarnir svokölluðu úr Gálgahrauni, koma ekki að málinu.

Sjá einnig: „Fólk á rétt á því að vera með friðsamleg mótmæli“

Í stefnu Ómars Ragnarssonar kemur fram að hann hafi komið gangandi með öðrum manni að hrauninu mánudaginn 21. október 2013.

Framkvæmdir höfðu hafist þá um morguninn við afar umdeilda lagningu Álftanesvegar í gegnum Gálgahraun, en á þeim tíma var ekki fengin niðurstaða í ágreiningsmál sem voru til meðferðar fyrir dómstólum um lögmæti vegagerðarinnar.“

Þar var hópur fólks að mótmæla vegagerðinni og settist Ómar niður með þeim. Þá mun lögreglan hafa komið skömmu seinna og skipað þeim að færa sig út fyrir svæði sem þá var sagt vera vinnusvæði. Því næst hófu lögregluþjónar að bera mótmælendur út fyrir svæðið. Í stefnunni segir að Ómar hafi ekki veitt mótspyrnu.

Margir mótmælendur voru handteknir í Gálgahrauni.Vísir/GVA
Handtökur skipulagðar fyrirfram

Hann var handtekinn og færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu ásamt fleira fólki. Þá var hann vistaður í fangaklefa ásamt fleirum og látin laus skömmu síðar. Ómari varð boðin sektargerð að upphæð tíu þúsund krónur. Honum var gefið að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu og ástæða handtöku samkvæmt lögregluskýrslu hafi einnig verið að koma í veg fyrir áframhaldandi brot.

Í stefnunni segir þó að dagsetningar í skýrslu lögreglu sýni ásetning. Þar megi sjá að aðgerðirnar hafi verið skipulagðar á föstudeginum 18. október. Handtökuskýrslur og sektargerðir hafi verið undirbúnar fyrirfram.

Þá segir að aðgerðir og valdbeiting lögreglu hafi verið úr hófi og ekki í samræmi við tilefnið. Um fimmtíu til sextíu lögreglumenn hafi verið í Gálgahrauni og hafi þeior verið mun fleiri en mótmælendurnir. Þar að auki voru lögregluþjónarnir vopnaðir gasbrúsum, kylfum og handjárnum.

Samkvæmt stefnunni var brotavettvangurinn útbúinn af lögreglu samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun til þess að reyna að búa til eitthvert handtökutilefni þegar það hafi ekki verið fyrir hendi.

„Þetta var gert með því að afmarka nýtt svæði með borðum um leið og búið var að færa stefnand og aðra út fyrir hið fyrra svæði án þess að nokkrum reglum um afmörkun vinnusvæðis væri fylgt. Stefnandi og aðrir þeir sem höfðu sest niður utan borða voru því skyndilega fyrir innan þá án nokkurrar skýringar.“

Aðalmeðferð málsins verður haldin í september.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×