Innlent

Vilja taka upp skattaafslátt sem var afnuminn fyrir 26 árum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Elsa Lára hefur tekið við keflinu af Sigurði Inga Jóhannssyni sem barðist fyrir tekjuskattsafslættinum.
Elsa Lára hefur tekið við keflinu af Sigurði Inga Jóhannssyni sem barðist fyrir tekjuskattsafslættinum. Vísir / Pjetur
Sérstakur afsláttur af tekjuskatti var felldur niður og færður inn í persónuafslátt þegar hann var tekinn upp árið 1988. Nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins hafa nú lagt til að slíkur afsláttur verði tekinn upp að nýju. Það hefði í raun í för með sér að afslátturinn yrði veittur í tvígang, bæði með persónuafslætti og þeim nýja.



Fjórða tilraun til að gefa afslátt

Þingmennirnir vilja að í frumvarpinu verði ráðherra veitt heimild til að útfæra og setja reglur um skattaafsláttinn. Afslátturinn á að gilda fyrir þá sem sækja vinnu innan tiltekinna og skilgreindra atvinnusvæða innan lands. Tillaga sama efnis hefur verið lögð fyrir þingið þrisvar áður.



Elsa Lára Arnardóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en meðflutningsmenn hennar eru Jóhanna María Sigmundsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Haraldur Einarsson.



Skúli segir að almennt sé miðað við að reyna að einfalda skattkerfið.Vísir / Sigurður
Flestir afslættir felldir niður 1988

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að flestir afslættir hafi verið felldir niður fyrir meira en aldarfjórðung. Þá hafi fjöldinn allur af afsláttum verið settir inn í nýjan afslátt; persónuafslátt.



„Hér í áranna rás hefur ætíð verið mikið um ýmsa frádrætti frá tekjum en 1988 voru flestir þeir frádráttarliðir felldir niður. Þegar staðgreiðsla var tekin upp,“ segir Skúli Eggert aðspurður um afslætti af tekjuskatti. „Einn af þeim liðum sem þá var felldur niður var akstur á milli heimilis og vinnustaðar.“



Reyna að einfalda skattkerfið

Aðgerðirnar 1988 og þær sem eftir hafa komið hafa flestar tekið mið af því að einfalda skattkerfið. Upptaka sérstaks aflsáttar til ákveðins hóps sem keyra þarf ákveðinn kílómetrafjölda til vinnu myndi flækja kerfði. „Það er þróun í skattlagningu almennt í heiminum að menn reyna að einfalda skattkerfið,“ segir Skúli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×