Golf

Vilja spila golf með fimm metra löngum krókódíl | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Krókódíllinn er engin smásmíði.
Krókódíllinn er engin smásmíði. mynd/twitter
Buffalo Creek golfvöllurinn í Flórída er enginn venjulegur golfvöllur.

Einn af fastagestum golfvallarins er nefnilega fimm metra langur krókódíll sem er orðinn heimilisvinur á vellinum. Fólk hreinlega keppist um að fá rástíma þarna í von um að sjá dýrið spóka sig á vellinum.

Þessi hrikalega skepna hefur labbað um völlinn í áraraðir. Dýrið hefur ekki ógnað kylfingum og kylfingar eðlilega verið lítið í því að ógna dýrinu.

Er dýrið lætur sjá sig hægir eðlilega á spilamennskunni enda fer krókódíllinn ekki hratt yfir.

Það er ótrúleg sjón að sjá dýrið á vellinum eins og sjá má í myndbandinu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×