Erlent

Vilja skipta Google upp

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Leitarvél Google mótar mjög netnotkun fjölda fólks.
Leitarvél Google mótar mjög netnotkun fjölda fólks. Nordicphotos/AFP
Stofnanir Evrópusambandsins eru í vaxandi mæli farnar að skipta sér af starfsemi bandaríska netrisans Google. Í gær samþykktu þingmenn Evrópuþingsins ályktun um að leitarþjónusta Google verði aðskilin frá annarri þjónustu fyrirtækisins.

Ályktunin er ekki bindandi, en var samþykkt með 384 atkvæðum gegn 174. Við atkvæðagreiðsluna í gær sátu 56 þingmenn hjá.

Þá hefur rannsókn á Google verið í gangi í fjögur ár á vegum samkeppniseftirlits Evrópusambandsins, og snýst sú rannsókn um það hvort Google misnoti sér yfirburðastöðu sína sem helsta leitarvél á vefnum. Til dæmis gæti Google þess að önnur þjónusta fyrirtækisins, eins og til dæmis kortavefur Google, lendi efst eða ofarlega á lista þegar fólk leitar að slíku.

„Þegar fyrirtæki er nánast með einokunarstöðu, þá þarf það hreinlega að sætta sig við að geta ekki boðið upp á allt í einu,“ segir þýski Evrópuþingmaðurinn Jan Philipp Albrecht, úr flokki Græningja, í viðtali við þýska sjónvarpið ARD.

Fyrr á árinu kvað Evrópudómstóllinn upp þann úrskurð að Google beri að verða við óskum um að niðrandi efni um einstaklinga á netinu „gleymist“ fari viðkomandi einstaklingar fram á það. Á miðvikudaginn lýsti svo persónuvernd Evrópusambandsins því yfir að þessi „réttur til að gleymast“ eigi ekki einungis að gilda um efni á landsvefjum Google heldur einnig um efni á almenna vefnum Google.com.

Bandarísk stjórnvöld hafa varað Evrópuþingið við afskiptum af rekstri Google. Fastafulltrúar Bandaríkjanna sendu fyrr í vikunni frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir segjast hafa áhyggjur af því að evrópskir stjórnmálamenn reyni að hafa áhrif á rannsókn samkeppniseftirlitsins.

Þingmenn Evrópuþingsins hafa hins vegar sagt mikilvægt að leitarþjónusta Google verði óhlutdræg og gagnsæ. Neytendur eigi að fá aðgang að leitaraðferðum Google, og reyndar annarra leitarvéla einnig. Gæta verði þess að leitarvélar séu ekki í reynd auglýsingaþjónusta fyrir tilteknar vörur.

Þessi afskipti stofnana Evrópusambandsins af starfsemi Google minna reyndar töluvert á afskipti Evrópusambandsins af tölvurisanum Microsoft, sem á endanum neyddist til að aðskilja að mestu netvafra sinn, Internet Explorer, frá Windows-kerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×