Innlent

Vilja seinka klukkunni um eina klukkustund

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Þingsályktunartillaga sem lögð var fram á Alþingi fyrir mánaðarmótin fjallar um að Alþingi feli ríkisstjórninni að seinka klukkunni á Íslandi um eina klukkustund. Tillagan er lögð fram af þingmönnum allra þingflokka, nema Vinstri grænna, og hana má sjá hér á vef Alþingis.

Tillagan hefur áður verið flutt á löggjafarþingum en hlaut ekki efnislega umræðu.

„Síðan 1968 hefur klukkan á Íslandi verið stillt á sumartíma allt árið og er því klukkutíma of fljót miðað við legu landsins sem leiðir til þess að ljósaskiptum seinkar, bæði dagrenningu og kvöldi. Sól er því hæst á lofti vestast á landinu, til dæmis í Reykjavík, kl. 13.30 og austast, t.d. á Egilsstöðum, hálftíma fyrr, en væri þar á hádegi ef landið tilheyrði réttu tímabelti,“ segir í greinargerð tillögunnar.

Þá segir að sumartími gefi okkur bjartari kvöld á sumrin, en fórnarkostnaðurinn sé sá að á veturna styttist birtutíminn á morgnana um rúmar sex vikur.

„Vegna þessarar tímaskekkju á Íslandi kannast líklega flestir Íslendingar við þá nöpru tilfinningu að þurfa að vakna til vinnu eða skóla í svartamyrkri stóran hluta ársins. Í raun er enn nótt á Íslandi, miðað við gang sólar, þegar Íslendingar fara til vinnu klukkan átta eða hálfníu miðað við núverandi klukku.“

Verði klukkunni hins vegar seinkað um eina klukkustund verða morgnarnir bjartir langt fram í nóvember samkvæmt tillögunni.

Af þessu tilefni finnst Vísi kjörið að rifja upp fimm ára gamalt myndband sem íslenskur maður sendi frænda sínum í Ástralíu þegar verið var að kjósa um sama mál þar í landi. Myndbandið hefur verið vinsælt á síðunni Reddit síðustu daga þar sem það hefur vakið mikla lukku.

Í myndbandinu segir Óskar að hann myndi rífa klukkutíma úr höndum Ástrala, ef hann hefði tækifæri til þess.

„Á hverjum degi fæ ég þrjá tíma af sólarbirtu. Þrjá tíma og þú ert að rífast yfir einum klukkutíma,“ segir Óskar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×