Innlent

Vilja reyklaus strætóskýli

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/VIlhelm
Strætó vill gera öll strætóskýli reyklaus og hefur nú farið af stað með átak þess efnis. Tilefni verkefnisins eru ítrekaðar kvartanir frá farþegum vegna reykinga, öðrum farþegum til mikils ama.

Í tilkynningu frá Strætó segir að samkvæmt reglugerð séu tóbaksreykingar óheimilar á opinberum stöðum sem almenningur hefur aðgang að. Átakið er unnið í samstarfi við sveitarfélögin sem eiga aðild að Strætó bs. ásamt AFA JCDecaux Ísland ehf. sem einnig eiga og reka strætóskýli á höfuðborgarsvæðinu.

Strætó biðlar til farþega sinni að sýna tillitssemi og reykja ekki í skýlunum.​




Fleiri fréttir

Sjá meira


×