Innlent

Vilja rannsókn á strokufiski úr sjókvíum

Sveinn Arnarsson skrifar
Landssamband veiðifélaga krefst þess að stjórnvöld láti fara fram óháða rannsókn á því af hverju regnbogasilungur hefur sloppið í svo miklu magni úr kvíum á Vestfjörðum. Segja þeir það hafa leitt til þess að regnbogasilungur hefur veiðst um allt norðanvert og vestanvert landið síðustu vikur og mánuði.

„Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að þetta er skýrt merki um hvers er að vænta á næstu árum,“ segir Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga.

Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva
„Þeir sem eru í regnbogaeldi eru flestir hverjir að hætta í því og færa sig í laxeldi. Það eru engar líkur á að hann sleppi eitthvað minna. Þegar frjór eldislax sleppur getur það valdið erfðamengun og að við töpum þessu villtu stofnum. Skýr rannsóknardæmi eru um að það er að gerast í nokkrum ám í Noregi og að villtir stofnar eru að hverfa úr þeim.“

Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva, gefur lítið fyrir kort sem hefur verið gefið út af Landssambandi veiðifélaga. „Það er á hreinu að þetta kort er gefið út núna í áróðursskyni til þess að hræða yfirvöld. Regnbogasilungur hefur sannarlega veiðst í ám en hann getur ekki á nokkurn hátt fjölgað sér og ég veit að veiðimenn hafa haft gaman af því að veiða hann,“ segir Höskuldur. „Einnig hefur Fiskistofa ekki verið sátt við framsetningu kortsins og talið hana villandi.“

Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga
Í ár verða framleidd við Ísland um fimmtán þúsund tonn af eldislaxi og innan þriggja ára gæti slátrun eldisfisks hér á landi orðið meiri en samanlögð kjötframleiðsla hér á landi.

Tveggja daga eftirlitsferð Fiskistofu um daginn staðfesti að regnbogasilung er nú að finna í ám í Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði og Dýrafirði. Fiskistofa rannsakar nú hvort regnbogasilung sé einnig að finna í Ísafjarðardjúpi, en grunur er um að svo geti verið. Fiskistofa hefur ekki fengið tilkynningu um að slysaslepping hafi orðið í fiskeldi á Vestfjörðum, en rekstraraðilum í fiskeldi er skylt að tilkynna um slys. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×