Innlent

Vilja opna neyðarbrautina á ný

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Bæjarráð Akureyrar bókaði um neyðarbrautina.
Bæjarráð Akureyrar bókaði um neyðarbrautina. vísir/pjetur
Bæjarráð Akureyrar fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um stöðu Reykjavíkurflugvallar og lokun neyðarbrautar. Bæjarráðið bókaði að skorað yrði á borgarstjórn Reykjavíkurborgar, innanríkisráðherra og Alþingi að hafa neyðarbrautina opna.

„Í höfuðborg Íslands er eina hátæknisjúkrahús landsins. Það er því lífsnauðsynlegt að þangað sé ávallt greið leið með sjúklinga hvort sem er af höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðunum. Lokun neyðarbrautarinnar svokölluðu á Reykjavíkurflugvelli hefur á undangengnum vikum leitt til þess að sjúkraflugvélar hafa ekki getað lent í Reykjavík né annars staðar á suðvesturhorninu með alvarlega veika einstaklinga, sem hafa þurft á bráðnauðsynlegri umönnun að halda á þessu eina hátæknisjúkrahúsi okkar landsmanna.

Það er því ófrávíkjanleg krafa bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafn góð lausn finnst.

Bæjarráð skorar á borgarstjórn Reykjavíkurborgar, innanríkisráðherra og Alþingi að stuðla að því að svo geti orðið,“ var bókað.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×