Innlent

Vilja ná tökum á fjármálunum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmiá að vinna að endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins.
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmiá að vinna að endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vill skýringar á fjárhagsstöðu Stykkishólms. Nefndin segir ársreikning bæjarins fyrir 2013 ekki í samræmi við jafnvægisreglu um fjármál sveitarfélaga.

Bæjarráðið fól Sturlu Böðvarssyni bæjarstjóra að hefja fjárhagslega og rekstrarlega endurskipulagningu og semja við ráðgjafa um fjármál sveitarfélaga. Sturlu er heimilt að vinna að skipulagsbreytingum á bæjarskrifstofum og stofnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×