Vilja kjósa um forystu

Fréttablaðið Innlent 28. janúar 2012 07:00
forystan endurkjörin Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson voru endurkjörin formaður og varaformaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í nóvember.
fréttablaðið/daníel
forystan endurkjörin Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson voru endurkjörin formaður og varaformaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í nóvember. fréttablaðið/daníel
Hávær krafa er innan Samfylkingarinnar um að kosið verði um forystu flokksins á aukalandsfundi. Tillaga liggur fyrir flokksstjórnarfundi um landsfund í vor en reynt er að ná sátt um fund í haust. Landsdómsmálið verður rætt á flokksstjórnarfundi sem hefst í dag.

Flokksstjórn Samfylkingarinnar hittist á fundi í dag. Dagskráin er þéttskipuð, ræða á verkefnin framundan, ríkisfjármál og atvinnumál fyrir hádegi, en eftir hádegi verða málstofur um ýmsa geira atvinnumála.

Dagskráin mun þó án efa riðlast. Ljóst er að fjölmargir flokksmenn vilja ræða Landsdómsmálið. Þar liggur ekki aðeins undir málsmeðferðin, en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur verið gagnrýnd fyrir hana, meðal annars af ungliðahreyfingu flokksins. Efnisleg umræða um ákæru á hendur Geir H. Haarde mun einnig fara fram.


Efnisatriði enn órædd
Þingmenn Samfylkingarinnar voru ekki samstíga í kosningu sinni um ákæruna á hendur Geir. Sumir vildu engan ákæra, einhverjir alla og aðrir aðeins einn.

Heimildarmenn Fréttablaðsins telja að flokkurinn eigi eftir að ræða um þessi mál. Aldrei hafi verið rætt til hlítar hver afstaðan var til ákæru, sem margir telja lið í uppgjöri við hrunið.

Þá kusu fjórir þingmenn flokksins gegn frávísun á tillögu Bjarna Benediktssonar um að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði afturkölluð. Það voru þau Árni Páll Árnason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Kristján L. Möller og Össur Skarphéðinsson. Að auki hefur Sigmundur Ernir Rúnarsson lýst því yfir að hann hefði gert eins, en hann var fjarverandi.

Ljóst er að þessir þingmenn verða rukkaðir um skýringu á afstöðu sinni. Það má því búast við að fundurinn snúist að nokkru leyti um efnisatriði ákærunnar, þar sem afstaða til upphaflegrar ákæru verður einnig rædd.


Vilja aukalandsfund
Flokksstjórn fundaði síðast í desember, þegar Jóhanna Sigurðardóttir, formaður flokksins, skýrði frá breytingum á ráðherraliði flokksins. Á þeim fundi lögðu Andrés Jónsson, fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna, og fleiri fram tillögu um aukalandsfund. Samþykkt var að ræða hana á fundinum sem hefst í dag.
Tillöguna á að ræða á eftir málefnastarfi í dag. Andrés segir að tillöguflytjendur séu að skoða það að draga tillöguna til baka, enda sé að nást sátt innan flokksins um landsfund í haust.

„Það hefur verið komið að máli við okkur af hálfu aðila innan flokksins um það að draga tillöguna til baka gegn því að það verði sátt um að halda landsfund seint í haust."

Andrés segir ekki endilega nauðsynlegt að samþykkja slíkan fund í dag, eins sé hægt að taka ákvörðun á fundi flokksstjórnar í vor. Fundinn verði hins vegar að halda.


Gagnrýni á forystuna
Segja má að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi opnað á gagnrýni á forystu flokksins. Það gerði hann í viðtali í áramótahefti Viðskiptablaðsins. Þar sagði Össur:

„En það mun reynast flokki eins og Samfylkingunni, sem hefur þurft að taka margar mjög erfiðar ákvarðanir meðan unnið er úr hruninu, mjög erfitt að fara í gegnum næstu kosningar nema flokkurinn hafi náð að endurnýja sig, bæði forystuna og ekki síður hugmyndir sínar."

Össur hefur verið spurður út í þessi orð sín á þingi, en hefur vikið sér undan því að svara. Þá hefur Jóhanna einnig verið spurð út í ummælin, en hún sagði á Alþingi á fimmtudag að hún hefði skýrt umboð flokksins frá síðasta landsfundi, sem haldinn var í nóvember.

„Þar lagði ég upp verkefnalista sem ég er að fylgja eftir og ætla mér að gera til enda þessa kjörtímabils þannig að það er enginn bilbugur á mér. Ég veit ekki til annars en að ég hafi fullan stuðning míns flokks til að klára þau mál og þó að einhverjar vangaveltur séu hjá Össuri Skarphéðinssyni um einhverja framtíðarleiðtoga flokksins geri ég ekki mikið með það. Hann getur verið með sínar vangaveltur út og suður alveg eins og honum sýnist."


Verður að kjósa
Þeir sem leggja fram tillögur um landsfund í haust eru hins vegar sammála Össuri um að breytinga sé þörf. Andrés segir að nauðsynlegt sé að kosningar fari fram um forystuna fyrir næstu kosningar.

„Við tökum ekki afstöðu til þess hvort formaður eða varaformaður eigi að víkja, en teljum að það verði að endurnýja."

Það þýðir væntanlega nýtt fólk?

„Já, já. Markmiðið með tillögunni var fyrst og fremst að opna fyrir þá umræðu og það hefur tekist svo um munar. Jóhanna mun ekkert humma þetta fram af sér fram í kosningabaráttuna," segir Andrés. Hann segir mikilvægt að kosningar um forystu verði í haust en ekki rétt fyrir kosningar, en reglulegan landsfund á að halda á vori komanda.

Innri málefni flokksins verða því ofarlega á baugi á flokksstjórnarfundinum í dag, hvað sem skipuleggjendur hafa haft í huga.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 23. feb. 2012 07:32

Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag ...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 08:16

Geir Jón vill verða annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn ætlar að bjóða sig fram til embættis annars varaforman...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 08:00

Biðst afsökunar á "erótísku“ bréfi

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á þv...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 08:00

Ákærður fyrir henda flösku í lögreglubíl

„Sé ég eftir þessu? Já, ætli það ekki. Veskið mitt sér líka eftir þessu,“ segi...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:41

Innbrot í Húsaskóla

Brotist var inn í Húsaskóla í Grafarvogi í nótt og var þjófurinn handtekinn á staðnum. Fre...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:39

Fimm ökumenn sviptir ökuréttindum vegna hraðaksturs

Lögreglan svifti fimm ökumenn ökuréttindum til bráðabirgða eftir að þeir mældust á allt að...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:35

Veðurstofan spáir stormi við Suðurströndina

Veðurstofan spáir vestan stormi við Suðurströndina í kvöld, eða allt upp í 25 metra á sekú...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:30

Svarti dauði fer ekki í sölu í vínbúðunum

Bjór kenndur við svarta dauða verður ekki seldur í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTV...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:06

Þvottavél á hreyfingu olli vatnsleka

Þvottavél á baðherbergi í fjölbýlishúsi í Breiðholti tók upp á því um eitt leitið í nótt, ...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 07:00

Gera má betur í baráttu við misrétti og fordóma

Kynþáttafordómanefnd Evrópuráðsins gerir ýmsar athugasemdir við stöðu mála á Íslandi í nýr...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 06:00

Skapabarmaaðgerðir færast í aukana hjá lýtalæknum

Fegrunaraðgerðir á innri skapabörmum kvenna hafa færst í aukana á síðustu árum. Samkvæmt u...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 06:00

Framsókn hissa á fjárnámsfrétt

Viðræður hafa staðið yfir milli Framsóknar í Reykjavík og forsvarsmanna fyrirtækisins JCDe...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 05:00

Forvarnir spara umtalsvert fé

Forvarnarstarf í kynferðisbrotum gegn börnum er samfélaginu nauðsynlegt og sparar til leng...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 04:30

Þjónustumiðstöð á nýjum gatnamótum

Sveitarfélagið Árborg hefur veitt vilyrði fyrir sex hektara lóð undir nýja verslunar- og þ...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 03:13

Árásarmaður leystur úr haldi

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir ...  

Meira
Innlent 23. feb. 2012 03:13

Saga ASÍ kemur út í október

Skrifað hefur verið undir útgáfusamning vegna sögu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sem koma á...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 23:06

Baldur fer á Litla-Hraun - en hann byrjar í Hegningarhúsinu

Afplánun Baldurs Guðlaugssonar hefst í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg samkvæmt frétt s...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 20:53

Líf og fjör á Öskudegi - myndir

Það var líf og fjör á Öskudeginum í dag eins og við mátti búast. Fjöldi barna klæddu sig u...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 20:07

Formaður slitastjórnar Dróma: Segist aðeins hafa séð fimm kvartanir

Formaður slitastjórnar Dróma, Hlynur Jónsson, segir félagið aðeins hafa fengið að sjá fimm...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 19:30

Nýjar Þjórsárvirkjanir gætu skilað yfir 20 milljörðum á ári

Virkjanir í Þjórsá, sem stjórnarflokkarnir ræða nú um að falla frá eða setja á bið, gætu s...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 19:00

Ýtti við yfirmanni Dróma og ruddist inn á heimilið

Ráðist var á yfirmann hjá Dróma á heimili hans í gær. Lögregla var strax kölluð til. Árása...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 16:33

Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjö...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 22:53

Halda minningu Ólafs á lofti á Rósenberg

Tónlistarhátíðin Reykjavik Folk Festival verður haldin &iacut...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 18:17

Fíkniefni fundust í skrifstofuhúsnæði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 120 grömm af marijúana við húsleit í skrifstofuhúsnæði...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 17:42

Reyndi að smygla stinningarlyfinu Kamagra til landsins

Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir tollalagabrot þ...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 14:40

Sýslumenn svara HH fullum hálsi

Stjórn Sýslumannafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingum Hagsmu...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 12:25

Ráðist á starfsmann Dróma á heimili hans

Ráðist var á starfsmann Dróma á heimili hans í gærkvöldi. Starfsmenn fyrirtækisins eru sle...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 11:43

Ákærðir fyrir tilraun til manndráps en neita sök

Allir mennirnir þrír sem ákærðir hafa verið fyrir tilraun til manndráps eftir skotárás í B...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 12:01

Steingrímur Sævarr sýknaður í meiðyrðamáli

Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri vefmiðilsins Pressunnar, var í Héraðsdómi Reykjavík...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 10:56

Grútaður fálki í Húsdýragarðinum

Starfsmenn Húsdýragarðsins í Reykjavík eru nú að undirbúa komu fálka, sem fannst ataður í ...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 08:30

Forrit finnur barnaníð í tölvum

Íslenskt fyrirtæki sem hannað hefur tölvuforrit sem nýtist lögreglu við rannsókn á ólögleg...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 08:14

Hlýnun jarðar eykur raforkuframleiðslu Íslands um 20%

Aukið vatnsrennsli í ám og uppistöðulónum á Íslandi vegna hlýnunar jarðar mun auka raforku...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:59

Lögreglan lýsir eftir 15 ára gömlum dreng

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:45

Rasisti á borði ákæruvalds

Mál yfirlýsts rasista sem réðst á fyrrverandi kennara sinn eftir deilur á Facebook hefur v...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:04

Tveir ofbeldisseggir teknir úr umferð

Tveir ofbeldisseggir voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt....  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:02

Loðnugangan rétt austan við Stokkseyri

Loðnan gengur nú hratt vestur með Suðurströndinni og eru skipin þessa stundina að veiða út...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:00

Reyndu að stela flöskum og dósum frá björgunarsveit

Lögreglan á Selfossi handtók tvo unga karlmenn á bakvið nýju björgunarmiðstöðina við Árveg...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 07:00

Hótar að fara fram á gjaldþrot Framsóknar

Sýslumaðurinn í Reykjavík gerði árangurslaust fjárnám hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík á...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 06:57

Ofurölvi íslenskur sjómaður sendur heim frá Kanada

Íslenskur sjómaður sem var handtekinn ofur ölvi á bar í St. Johns á Nýfundnalandi í Kanada...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 06:30

Dómari bíður eftir sérstökum

Sex milljarða skaðabótamál slitastjórnar Glitnis, kennt við félagið Aurum Holding, á hendu...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 06:15

Neikvætt viðhorf til asískra kvenna algengt

Lítilsvirðing í garð asískra kvenna er áberandi í íslenskum fjölmiðlum, bókmenntum og kvik...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 06:00

200 milljarða króna sveifla í sjávarútvegi

Reikna má með að eigið fé sjávarútvegsins hafi verið um 100 milljarðar um áramótin og stef...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 05:45

Þjóðin fái að kjósa um stjórnarskrána

Drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða borin undir þjóðaratkvæði samhliða forseta...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 05:15

Meirihlutinn tjáði sig ekki

Borgarfulltrúar meirihluta Besta flokksins og Samfylkingar vildu ekki tjá sig um verkefnis...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 05:00

Hrekkjalómur gerði á sig af hræðslu

Fjölskyldufaðir var í gær fundinn sekur um frelsissviptingu í Héraðsdómi Reykjavíkur og ge...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 04:30

Tekist á um frávísun á hluta málsins

Tekist var á um frávísunarkröfu á atriði sem Guðlaugur Sigmundsson og eiginkona hans bættu...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 04:30

Hver maður borðar 10 kíló

Landsmenn borðuðu samtals 3.134 tonn af nautakjöti á síðasta ári samkvæmt samantekt Landss...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 03:45

Með fjóra bása í Kolaportinu

Fjölskylduhjálp Íslands verður með fjóra sölubása í Kolaportinu fyrstu þrjár helgarnar í m...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 03:13

Afhentu 38.000 undirskriftir

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) fundaði með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ísland...  

Meira
Innlent 22. feb. 2012 03:13

Helmingi fleiri ferðamenn

Árið 2011 komu rúmlega helmingi fleiri ferðamenn til Ísafjarðar heldur en árið 2008. Þetta...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Vilja kjósa um forystu