Innlent

Vilja hraðari uppbyggingu leikskóla

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Nýr leikskóli er í byggingu á Þórshöfn.
Nýr leikskóli er í byggingu á Þórshöfn. Fréttablaðið/Pjetur
„Það er brýnasta verkefni Langanesbyggðar að byggja nýjan leikskóla og hörmum við hvað lítið hefur gerst í þeim málum frá kosningum,“ segir í bókun minnihluta U-listans í sveitarstjórn Langanesbyggðar.

Óskað var eftir upplýsingum á fundi sveitarstjórnarinnar en oddvitinn sagði að þar sem engin gögn fylgdu fyrirspurninni yrði henni ekki svarað fyrr en síðar. Fulltrúar U-listans sögðust þá óska þess að byggingarnefnd leikskólans á Þórshöfn starfaði áfram eins og hefði verið síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×