Erlent

Vilja heimila lögreglu að setja útgöngubann á hælisleitendur

Atli Ísleifsson skrifar
Henriksen vill að útgöngubannið geti gilt bæði í styttri og lengri tíma.
Henriksen vill að útgöngubannið geti gilt bæði í styttri og lengri tíma. Vísir/Getty
Danski þjóðarflokkurinn (DF) vill veita lögreglu og starfsmönnum á heimilum fyrir hælisleitendur heimild til að setja útgöngubann á íbúa heimilanna.

Martin Henriksen, talsmaður flokksins þegar kemur að málefnum innflytjenda, segir að flokkurinn vilji að útgöngubannið eigi að geta gilt bæði í styttri og lengri tíma.

„Það gæti átt við þegar ítrekað hefur verið ráðist gegn konum í nágrenni við heimilin, aukið ofbeldi eða fjöldaslagsmál, sem við höfum meðal annars séð í tengslum við knattspyrnulandsleiki,“ segir Henriksen.

Í frétt SVT segir að ummæli Henriksen komi eftir að fimm táningspiltar voru fluttir frá heimili fyrir hælisleitendur eftir að tveir þeirra voru ákærðir fyrir nauðgun og þrír fyrir að flassa á tónlistarhátíð í lok síðasta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×