Viðskipti innlent

Vilja halda gjaldeyrisútboð í næsta mánuði

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti nú síðdegis fyrir frumvarpi á Alþingi sem markar næstu skref við losun fjármagnshafta á Íslandi. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að frumvarpið sé liður í aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta sem kynnt var í júní í fyrra.

Fyrsta skrefið sé búið og aflandskrónurnar séu næstar.

„Aflandskrónueignir eru nú yfir 300 milljarðar króna og er líklegt talið að eigendur þeirra kysu að umbreyta þeim í gjaldeyri ef slíkt væri heimilt. Það kynni að hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð og fjármálalegan stöðugleika. Dæmi um slíkar eignir eru innstæður, fjármunir á fjárvörslureikningi, skuldabréf og víxlar.“

Í tilkynningunni segir að aflandskrónueignir verði áfram háðar takmörkunum en megintilgangur frumvarps Bjarna hafi verið að aðgreina þær eignir nánar og með tryggilegum hætti.

Verði frumvarpið að lögum stendur til að Seðlabanki Íslands haldi gjaldeyrisútboð í næsta mánuði. Þar verði aflandskrónueigendum gefinn kostur á að skipta þeim í evrur. Þær eignir sem ekki verða nýttar í útboðinu muni sæta þeim takmörkunum sem boðaðar séu í frumvarpinu.

„Í tæp átta ár hafa fjármagnshöftin takmarkað áhættudreifingu í eignasöfnum innlendra aðila og heft möguleika fyrirtækja til að nýta samstarfsverkefni við erlenda aðila og ávöxtunartækifæri erlendis. Efnahagslegt óhagræði sem af þessu hlýst fer vaxandi með tímanum. Þessi liður í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta leggur grunninn að næstu skrefum í átt til losunar gjaldeyrishafta og munu þau snúa að heimilum og fyrirtækjum á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×