Innlent

Vilja grjótflísarnar af stígunum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Reykjavíkurborg byrjar senn að þrífa göngustíga sem á að gera þá greiðfæra fyrir hjólreiðafólk og aðra vegfarendur. Formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur segir að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu seint á ferðinni við þrif og þá séu of hvassir steinar notaðir í möl á stígana sem skemmi dekk.

Algjör sprenging hefur orðið í vinsældum hjólreiða hér á landi. Í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um að efla vistvæna ferðamáta er það meginmarkmið Hjólreiðaáætlunar 2015-2020 að auka hlutdeild hjólreiða en það er hagkvæmt, hefur góð áhrif á umhverfi, lýðheilsu og lífsgæði.

Borgin þrífur hjólastígana eftir sérstakri verkáætlun vorhreinsunar. Samkvæmt henni á hreinsun að hefjast í fjórtándu viku sem er í næstu viku. Þúsundir hjólreiðamanna eru á keppnishjólum eða svökölluðum racerum. Til þess að þeir geti notað hjól sín þarf að hreinsa stígana.

Albert Jakobsson, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur, segir að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu frekar seint á ferðinni við þrif.

„Okkur finnst þetta vera seinn á ferðinni miðað við hvað allt er orðið autt hjá okkur (klaki og snjór farinn innsk.blm). Það væri gaman að fá stærstu aðalstígana nokkuð hreina,“ segir Albert. 

Þessir steinar (sjá myndskeið) eru á Ægissíðunni á vinsælli hjólaleið. Þeir sýna glögglega hversu gróf möl er notuð á stígana í borginni. 

„Við erum með dekk sem er með þrýsting upp í 140-150 pund. Það gerir það að verkum að smávægileg oddhvöss grjót eða flísar skera sig í gegnum dekkin um leið.“

Í raun er þetta ekki sandur heldur steinflísar. Mölin sem notuð er á stígana gerir það að verkum að mjög erfitt er að hjóla á keppnisreiðhjólum á stígunum vegna þess hversu fín dekkin eru á slíkum hjólum.

„Þetta gerir það að verkum að það er ekki fýsilegt að fara á fínu götuhjólunum okkar fyrr en búið er að fara að minnsta kosti eina og hálfa umferð yfir stígana og fá rigningu inni á milli,“ segir Albert. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×