Viðskipti innlent

Vilja geta svarað kaupendum sem eru tilbúnir að greiða hærra verð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Forstjóri Landsvirkjunar segir að fjöldi gagnavera og kísilvera óski nú eftir orkukaupum og þau séu tilbúin að greiða hærra verð. Því sé mikilvægt að fá skýr svör frá stjórnvöldum um hvar megi virkja.

Hvellur varð á Alþingi í gær þegar upplýstist að stjórnarforystan vildi færa átta virkjunarkosti yfir í nýtingarflokk. Af þeim er Landsvirkjun að biðja um sjö.

„Það sem við erum aðallega að kalla eftir er að fá skýrar línur,“ sagði Hörður Arnarson forstjóri í samtali við Stöð 2.

Hann sagði það hlutverk stjórnmálamannanna að ákveða hvaða svæði mætti þróa. Umtalsverð eftirspurn væri núna og orkufyrirtæki þyrftu að fá skýr svör hvernig þau gætu unnið gagnvart þessum viðskiptavinum.

Allir virkjunarkostirnir eru sunnan heiða, flestir á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár, en Hörður segir að einungis þrír þeirra séu langt komnir í undirbúningi. Sumir væru komnir það skammt á veg að ljóst væri að það myndi taka að minnsta kosti 3-4 ár að fara í þá, eins og Skrokköldu, Hágöngur og Hólmsá. Suma af kostunum í neðri Þjórsá væri aftur á móti hægt að fara í á 1-2 árum.

En er Landsvirkjun að hugsa um að afla orku í sæstreng eða kannski í álver í Helguvík?

„Nei, alls ekki. Sæstrengurinn er allt annað mál. Við erum að hugsa um þessa eftirspurn sem við erum að horfa á núna, sem er fyrst og fremst frá þessum kísilmálmfyrirtækjum. Það eru þrjú kísilmálmfyrirtæki, sem eru langt komin í undirbúningi hér. Síðan er líka umtalsverður fjöldi gagnavera sem er að banka á dyr og hafa áhuga, og við erum að horfa til þeirra þegar við horfum á þessa orku.“

Og forstjórinn sér líka hagnaðarvon:

„Þessi fyrirtæki eru líka tilbúin að borga hærra verð en við höfum séð.“

Hörður segir erfitt að meta hver þjóðhagsleg áhrif yrðu af slíkum virkjanaframkvæmdum. Þau gætu orðið umtalsverð, sérstaklega þegar verðin hækka.

„Þá eru líka að myndast umtalsverðir fjármunir í Landsvirkjun sem við höfum notað til að greiða niður skuldir og fjárfesta frekar. Þannig að þetta getur haft mjög jákvæð áhrif.“


Tengdar fréttir

Átta virkjanakostir í nýtingarflokk

Formaður atvinnuveganefndar tilkynnti á fundi nefndarinnar gær að auk Hvammsvirkjunar yrðu sjö nýir virkjanakostir færðir úr biðflokki í nýtingarflokk. Stjórnarandstaðan segir komið aftan að sér og farið á svig við lög um rammaáætlun og vinnu verkefnastjórnar.

Allt vitlaust á Alþingi vegna virkjana

Upp úr sauð á Alþingi í morgun þegar stjórnarmeirihlutinn lagði til að átta virkjanakostir fari úr biðflokki í nýtingarflokk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×