Viðskipti erlent

Vilja fjölga stoðum efnahagskerfisins

Samúel Karl Ólason skrifar
Yfirvöld Sádi-Arabíu vilja draga úr því hve ríkisreksturinn er háður olíuframleiðslu og fjölga stoðum efnahagskerfis landsins.
Yfirvöld Sádi-Arabíu vilja draga úr því hve ríkisreksturinn er háður olíuframleiðslu og fjölga stoðum efnahagskerfis landsins. Vísir/EPA
Yfirvöld Sádi-Arabíu vilja draga úr því hve ríkisreksturinn er háður olíuframleiðslu og fjölga stoðum efnahagskerfis landsins. Mohammed bin Salman, krónprins landsins, tilkynnti í dag umfangsmiklar efnahagsaðgerðir sem umbreyta eiga efnahagi landsins á einungis nokkrum árum.

Sádar mun einbeita 

„Ég tel að ef olían myndi stoppa fyrir 2020, þá myndum við lifa af. Við þurfum nauðsynlega á henni að halda en ég held að árið 2020 gætum við komist af án hennar,“ sagði Salman í sínu fyrsta sjónvarpsávarpi. Auk þess að stýra efnahagsráði Sádi-Arabíu er hann einnig varnarmálaráðherra.

Búið er að endurbyggja fjárfestingarsjóð ríkisins og verður hann miðstöð fyrir fjárfestingar Sáda erlendis. Salman segir að samkvæmt núverandi gögnum sé útlit fyrir því að sjóðurinn muni hafa yfir að ráða rúmum tíu prósentum af fjárfestingagetu í heiminum.

Þá verður, samkvæmt Reuters fréttaveitunni, byggt upp innflutningskerfi sem mun gera aröbum sem hafa flutt á brott og múslimum auðveldara að flytja til Sádi-Arabíu og vinna þar til lengri tíma. Um er að ræða mikla stefnubreyting í innflytjendamálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×