Vilja byggja nýjar laugar í Fossvogi og Vatnsmýri Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 11. febrúar 2013 07:00 Hópurinn forgangsraðaði verkefnum í sundlaugum borgarinnar, og fyrsta stóra verkefnið ætti að vera útilaug við Sundhöllina. fréttablaðið/stefán
Útilaug við Sundhöllina ætti að rísa á næsta ári og hverfislaug fyrir Grafarholt og Úlfarsárdal árið 2015. Fjórar laugar til viðbótar ætti að byggja í borginni á næstu ellefu árum. Þetta er tillaga þverpólitísks starfshóps á vegum borgarinnar um framtíðarsýn sundlauganna í Reykjavík, sem skilað hefur skýrslu um málið. Aðrar laugar sem hópurinn leggur til að fjárfest verði í eru meðal annars innanhússlaug við Vesturbæjarlaugina og alveg nýjar sundlaugar í Fossvogi og Vatnsmýri. Þá ætti að mati hópsins að fjárfesta í hafnarlaug við Reykjavíkurhöfn og endurnýja laugarker við Laugardalslaugina. Fjárfestingaáætlun hópsins er gerð í samræmi við drög að aðalskipulagi, og hann telur æskilegt að uppbygging sundlauga haldist í hendur við markmið skipulagsins, sem er að byggja borgina innan núverandi borgarmarka. „Til lengri tíma litið fjölgar íbúum mest í nýju hverfi í Vatnsmýrinni þegar flugstarfsemi þar verður lögð af. Þar má gera ráð fyrir nýrri laug sem mun þjóna jafnframt stórum vinnustöðum á svæðinu, svo sem spítala og háskólum. Annað svæði sem gæti vaxið verulega til framtíðar er svæðið við Elliðaárvog,“ segir meðal annars í skýrslunni. „Miðað við forsendur aðalskipulagstillögu verður fjölgun íbúa í Grafarvogi og Úlfarsárdal, rúmlega þriðjungur allrar fólksfjölgunar.“ Til skemmri tíma litið eru svæðin í nágrenni við Vesturbæjarlaug, Sundhöllina og Laugardalslaug sögð líklegust til þess að vaxa, og helst þarf að bæta aðstæður í Vesturbænum. Meiriháttar viðhald er áformað í öllum þessum laugum. Einnig er fjallað um markaðssetningu sundlauganna og fjölda gesta í skýrslu hópsins. Þar kemur fram að í fyrra voru gestir sundlauganna í Reykjavík rúmlega 1,8 milljónir. Markmið hópsins er að fjölga í þessum hópi um 170 þúsund gesti. Þá hafa tæp 30 prósent þeirra erlendu ferðamanna sem koma til borgarinnar farið í sund, eða um það bil 158 þúsund ferðamenn. Takmark borgarinnar er að helmingur allra ferðamanna sæki laugarnar meðan á heimsókn þeirra stendur.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Sjá meira