Innlent

Vilja bjóða aðra fjölskyldu velkomna

Sveinn Arnarsson skrifar
Akureyri hefur tekið á móti á þriðja tug flóttamanna frá Sýrlandi á árinu. Hér býður Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, hóp velkominn í janúar.
Akureyri hefur tekið á móti á þriðja tug flóttamanna frá Sýrlandi á árinu. Hér býður Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, hóp velkominn í janúar. vísir/auðunn
Áætlað er að fimm manna sýrlensk fjölskylda bætist í hóp flóttamanna á Akureyri á næstu mánuðum. Velferðarráðuneytið hefur biðlað til bæjaryfirvalda að taka aukalega við fjölskyldunni sökum tengsla við eina af sýrlensku fjölskyldunum sem komu til Akureyrar í janúar.

„Við erum nú byrjuð að vinna þessa forvinnu getum við sagt. Við fengum erindi frá Velferðarráðuneytinu um að taka aukalega við einni fjölskyldu og bæjarráð hefur tekið vel í það,“ segir Kristín Sóley Sigursveinsdóttir, verkefnastjóri móttöku flóttafólks hjá Akureyrarbæ.

Kristín Sóley segir að fjölskyldan hafi í fyrstu átt að fara til Kópavogs eða Hveragerðis.

„En vegna fjölskyldutengsla við eina af okkar fjölskyldum var það sameiginlegur vilji ráðuneytisins og fjölskyldunnar að koma til Akureyrar og við fögnum því.“

Ingibjörg Elín Halldórsdóttir
Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, verkefnastjóri yfir móttöku flóttamanna á Akureyri fyrir Rauða krossinn, segir málið á byrjunarreit en unnið sé að komu fólksins.

„Þetta er enn nokkuð óljóst og málið á frumstigi en auðvitað tökum við vel á móti þeim ef þau koma,“ segir Ingibjörg Elín.

Kristín Sóley segir það geta verið mjög mikilvægt fyrir fjölskylduna að koma til Akureyrar vegna tengsla þeirra þangað.

„Það er bæði styrkur fyrir nýju fjölskylduna að hitta fólk sem talar sama tungumál og þú og ef fjölskyldubönd eru einnig til staðar er mikilvægt að rækta þau. Þeir flóttamenn sem komu í janúar geta því leiðbeint og hjálpað nýju fjölskyldunni að aðlagast. Því gæti þetta orðið mjög áhugavert.“

Flóttafólkið sem kom í janúar á árinu hafði verið á flótta í Líbanon í um þrjú ár. Sömu sögu er að segja af þessari fjölskyldu. Hún býr við erfiðar aðstæður og Líbanon getur erfiðlega tekið við öllum þeim einstaklingum sem koma yfir landamærin frá Sýrlandi. Nú er fjórði til fimmti hver íbúi Líbanon Sýrlendingur að uppruna.

„Kerfið er að springa í Líbanon og til marks um það getur skriffinnskan við að fá fjölskylduna frá Líbanon til Íslands tekið allt að þrjá mánuði,“ segir Kristín Sóley.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×