Innlent

Vilja banna verðtryggingu á nýjum neytendalánum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Helgi Hjörvar leggur frumvarpið fram ásamt Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
Helgi Hjörvar leggur frumvarpið fram ásamt Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur. vísir/valli
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar, þingmenn Samfylkingarinnar, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um bann við verðtryggingu á nýjum neytendalánum, þar með talið húsnæðislánum.

Í fréttatilkynningu sem þingmennirnir hafa sent frá sér vegna frumvarpsins kemur fram að Samfylkingin hafi „haft þá stefnu að besta leiðin til að afneman verðtryggingu sé að ganga í Evrópusambandið og taka í kjölfarið upp evru sem gjaldmiðil,“ en þar sem núverandi ríkisstjórn hafi gert hlé á aðildarviðræðum við ESB sé sú leið ekki fær nú. Því þurfi að leita annarra leiða til að afnema verðtrygginguna.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að ýmis rök hnígi að afnámi almennrar verðtryggingar. Meðal annars sé þörf á aukinni neytendavernd auk þess sem margvísleg efnahagsleg rök séu fyrir því að afnema verðtrygginguna:

„Í óstöðugu og sveiflukenndu efnahagslífi er áhættan af lánastarfsemi einhliða á herðum lántakandans. Þetta leiddi m.a. til kröfu um almenna niðurfærslu verðtryggðra lána í kjölfar hruns krónunnar 2008. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar stóð í kjölfarið fyrir leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána og setti þannig ákveðið fordæmi fyrir því hvernig bregðast skuli við efnahagssveiflum í framtíðinni. Margir lántakendur taka enn verðtryggð lán þrátt fyrir reynsluna af hruni og verðbólgu, enda er greiðslubyrði verðtryggðra lána oft lægri í fyrstu.“

Þá gera þingmennirnir jafnframt að umræðuefni í fréttatilkynningunni loforð Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar um að verðtrygging yrði afnumin.

„Það loforð hefur ekki verið efnt þó forsætisráðherra hafi viðrað hugmyndir sýnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um verðtryggingu. Það er því ljóst að staða verðtryggingar á lánamarkaði er í uppnámi og mikilvægt að bregðast við af festu. Þess vegna er mikilvægt að löggjafinn dragi úr óvissu með því að banna verðtryggð neytendalán með skýrum hætti.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×