Innlent

Vilja aðhaldsaðgerðir í áfengis- og fíkniefnamálum

Jóhannes Stefánsson skrifar
Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt stefnuyfirlýsingu í áfengis- og fíkniefnamálum
Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt stefnuyfirlýsingu í áfengis- og fíkniefnamálum VÍSIR/Anton
„Stefna og aðgerðir skulu byggjast á bestu fáanlegu vísindagögnum um skilvirkni og hagkvæmni," segir meðal annars í nýrri stefnuyfirlýsingu stjórnvalda í áfengis- og vímuvörnum. Nýja stefnan gildir til ársins 2020 og hefur verið samþykkt af Kristjáni Þór Júlíussyni, heilbrigðisráðherra. Stefnunni er meðal annars ætlað að tryggja jöfnuð, en hún er gefin út af velferðarráðuneytinu.

Í stefnuyfirlýsingunni, sem er sú fyrsta sinnar tegundar síðan verkefnaáætlunin Ísland án eiturlyfja 2002 var samþykkt árið 1997, kemur meðal annars fram að ætlunin sé að takmarka aðgengi að áfengi og öðrum vímugjöfum með aðhaldsaðgerðum. „Það er meðal annars gert með aðhaldsaðgerðum varðandi sölufyrirkomulag áfengis, virkt eftirlit með notkun lyfseðilsskyldra lyfja, öflugri löggæslu og virku tolleftirliti," segir í stefnuyfirlýsingunni. Stefnan verður framkvæmd í samræmi við núgildandi löggjöf um ávana- og fíkniefni.

Aðgerðir stjórnvalda í málaflokknum munu byggja á stefnunni og aðgerðaáætlun sem verður gefin út í fyrsta skipti árið 2014. Hún mun gilda í tvö ár í senn.

Aðgerðir byggi á bestu þekkingu

Í stefnuyfirlýsingunni kemur fram að áfengisneysla Íslendinga sé undir meðaltali Evrópuþjóða, „og má ætla að sú aðhaldsstefna sem ríkt hefur hér á landi eigi sinn þátt í því." Þá segir einnig að „rannsóknir hafa sýnt að aðgerðir sem draga úr aðhaldi eru til þess fallnar að auka neyslu hvaða vímugjafa sem um ræðir."

Í lokaorðum yfirlýsingarinnar segir að „mikilvægt er við alla ákvarðanatöku stjórnvalda er varðar áfengi, ólögleg vímuefni og misnotkun ávana- og fíknilyfja og vefaukandi stera að lýðheilsusjónarmið séu höfð að leiðarljósi ásamt bestu þekkingu á virkum og árangursríkum aðgerðum."

Hörð andstaða við núverandi löggjafarstefnu

Á síðustu dögum hefur Vísir sagt frá ýmsum sem hafa eitthvað út á núverandi fíkniefnalöggjöf að setja. Einn þeirra er Pétur Þorsteinsson. Hann sagði í viðtali við Vísi að réttast væri að ráðast í „algjör sinnaskipti í fíknivörnum." Þá hefur þingflokkur Pírata haldið fram andstöðu sinni við refsistefnu í fíkniefnalöggjöf.


Tengdar fréttir

Afglæpavæðing fíkniefnaneyslu

Pétur Þorsteinsson er með þeim allra fyrstu sem kom fram á Íslandi og benti á að stríðið við dópið væri á villigötum – hann telur algera nauðsyn að menn opni fyrir þessu augu.

Mansalsfórnarlömb dæmd

Aðalheiður Ámundadóttir greinir viðhorfsbreytingu og vill að horfið verði frá refsistefnu í fíkniefnamálum; stefnu sem hún segir ómannúðlega og stórskaðlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×