Erlent

Vilja að ljósmyndari hætti að áreita Georg prins

Atli Ísleifsson skrifar
Georg prins kom í heiminn 22. júlí 2013.
Georg prins kom í heiminn 22. júlí 2013. Vísir/AFP
Lögfræðingar Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hafa farið fram á að ljósmyndari hætti að áreita Georg prins og barnfóstru hans.

Vilhjálmur og Katrín ætla ekki að lögsækja ljósmyndarann á þessu stigi en segja í bréfi að „ekkert foreldri myndi sætta sig við að einhver eltist við og áreiti barnið sitt og þeim sem annast það.“

Í frétt BBC segir að lögfræðingarnir fullyrði að hegðun umrædds ljósmyndara jafnist á við ofsóknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×