Innlent

Vilja að Ísland fordæmi harðræði Bandaríkjanna gagnvart flóttabörnum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman eftir helgi til að ræða nýlegar fregnir frá Bandaríkjunum þess efnis að börn ólöglegra innflytjenda séu aðskilin frá foreldrum sínum við komuna til Bandaríkjanna.

Greint hefur verið frá því að um 2000 börn hafi verið tekið frá foreldrum sínum undanfarna mánuði og hafa dvalið í flóttamannabúðum á meðan foreldrar þeirra eru sóttir til saka.

Myndir sem hafa birst í fjölmiðlum vestanhafs hafa vakið mikla reiði. Hér á landi virðist sú reiði ekki staðið á sér en boðað hefur verið til mótmælagöngu frá Austurvelli að Bandaríska sendiráðinu á fimmtudag og undirskriftarlisti gegn aðgerðum Bandaríkjastjórnar gengur um á Facebook. 

Á Facebook viðburði mótmælagöngunnar segir: „Við ætlum að hittast á Austurvelli með kerti og mótmælaspjöld og ganga þaðan að bandaríska sendiráðinu. Við krefjumst þess að aðskilnaði barna og foreldra stoppi umsvifalaust. Og við krefjumst þess að mannúðlega sé komið fram við flóttafólk allsstaðar.“

Nokkrir þingmenn hafa tekið undir kröfur þess efnis að íslensk stjórnvöld fordæmi aðgerðir Bandaríkjastjórnar. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar er þeirra á meðal. „Ég krefst þess að við sendum Bandaríkjastjórn skýr skilaboð um að þetta er ekki í boði. Þetta er aldrei í boði sama hvaða innflytjendastefnu þú ætlar að framfylgja,“ segir hún.

Hún bendir á að víða um heim sé brotið á réttindum flóttafólks en það sem geri aðgerðir Bandaríkjastjórnar sérlega ógeðfelldar er að þar koma sameinaðar fjölskyldur yfir landamærin þar sem þeim er kerfisbundið sundrað af hinu opinbera. Þá verði Ísland að láta í sér heyra þegar um er að ræða svo nána bandalagsþjóð.

„Nú er um að ræða NATO þjóð. Þannig að ég held að við eigum að fá aðrar NATO þjóðir til dæmis með okkur í lið til að fordæma aðgerðir Bandaríkjastjórnar. Að fjarlægja lítil börn frá foreldrum sínum er algerlega óforsvaranlegt.“


Tengdar fréttir

Forsetinn kennir Demókrötum um að fjölskyldum er sundrað

Hörð stefna bandarískra yfirvalda gegn ólöglegum innflytjendum hefur haft aðskilnað minnst tvö þúsund barna frá foreldrum sínum í för með sér. Trump segir engar breytingar verða gerðar á innflytjendalögum nema fjárheimildir fáist til að reisa vegg milli Bandaríkjanna og Mexíkó. Biblían notuð sem rökstuðningur

Mikil reiði vegna stefnu um börn ólöglegra innflytjenda

Mikil reiði hefur blossað upp í Bandaríkjunum vegna nýrrar stefnu um að taka megi börn frá ólöglegum innflytjendum og vista þau í flóttamannabúðum á meðan foreldrarnir fara í gegnum dómskerfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×