Innlent

Vilja að dyr Evrópusambandsins standi Íslendingum áfram opnar

Þ.Ó. í Brussel skrifar
Jean-Claude Juncker, næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur lýst því yfir að fimm ára hlé verði gert á frekari stækkun ESB.
Jean-Claude Juncker, næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur lýst því yfir að fimm ára hlé verði gert á frekari stækkun ESB. Vísir / AFP
Finnar og Hollendingar vilja að dyr Evrópusambandsins standi Íslendingum áfram opnar, enda þótt nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB vilji að fimm ára hlé verði gert á frekari stækkun sambandsins.

Mikla athygli vakti í sumar þegar Jean-Claude Juncker, næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lýsti því yfir að fimm ára hlé yrði gert á frekari stækkun ESB. Við það tækifæri sagði Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra í fréttum Stöðvar 2, að með þessari yfirlýsingu Junckers væri aðildarferli Íslands að sambandinu í raun lokið.

Breytt stefna Evrópusambandsins í stækkunarmálum hefur þó enn ekki verið samþykkt í helstu valdastofnunum þess. Ráðgert er að ný framkvæmdastjórn taki við í næsta mánuði, að því gefnu að Evrópuþingið staðfesti framkvæmdastjórnina á miðvikudaginn kemur.

Það veltur þó mest á ráðherraráði ESB hvort fimm ára stækkunarstopp verði að veruleika, en ráðið er vettvangur ríkisstjórna aðildarríkja sambandsins, og getur í raun falið nýrri framkvæmdastjórn að haga málum með öðrum hætti en Juncker hefur mælt fyrir.

Á fundi ráðherraráðsins í þessari viku voru stækkunarmál til umræðu. Í minnisblaði af fundinum, sem fréttastofa hefur undir höndum, er bókað að Finnar hafi - með stuðningi Hollendinga - mælt fyrir því að dyr Evrópusambandsins stæðu Íslendingum áfram opnar. Er Ísland þannig tekið út fyrir sviga annarra umsóknarríkja og lagt til að fimm ára stækkunarstopp eigi ekki við um Ísland.

Ekki var hreyft við andmælum við þessari tillögu á fundinum, en athygli vekur að Hollendingar skuli nú styðja inngöngu Íslands í ESB. Þegar Icesave deilan var í algleymingi vildu Hollendingar, þvert á móti, að ESB sliti viðræðum við Íslendinga, en af þessu má vera ljóst að afstaða Hollendinga gagnvart Íslandi hefur gerbreyst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×