Innlent

Vilja að borgin skaffi túrtappa og dömubindi á öll kvennaklósett

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Margrét og Una með dömubindin sem verða fáanleg á salernum Hagaskóla í næstu viku.
Margrét og Una með dömubindin sem verða fáanleg á salernum Hagaskóla í næstu viku. Visir/Vilhelm
Í næstu viku verða dömubindi og túrtappar fáanleg á öllum salernum Hagaskóla sem notuð eru af stelpum. Þetta er liður af fræðsluvikunni Túrvæðingin sem nýstofnað feministafélag skólans, Ronja (eftir samnefndri ræningjadóttur), stendur fyrir. Þetta kom fram á málþingi um kynhegðun, klámvæðingu og jafnréttisbaráttu ungs fólks sem haldið var í húsnæði Menntasviðs Háskóla Íslands fyrir troðfullu húsi í Stakkahlíðinni á föstudag. Yfirskriftin var „Ef þú ekki tottar, þú dagar upp og drepst!“.

Una Torfadóttir, ein þeirra sem unnu Skrekk í fyrra með atriðinu „Elsku stelpur“, tilkynnti þetta í lok fyrirlesturs síns um tilurð og eftirmála atriðsins. Þessi dóttir þingmannsins Svandísar Svavarsdóttur er nú í tíunda bekk þar og mjög virk í feministafélaginu. Formaður félagsins og stofnandi heitir Margrét Snorradóttir, vinkona Unu sem einnig tók þátt í siguratriði Skrekks í fyrra.

„Við erum að berjast fyrir því að borgin útvegi dömubindi og túrtappa á klósett í öllum skólum,“ sagði Una í viðtali við Vísi skömmu eftir að hún lauk erindi sínu á málþinginu. „Við viljum skapa þrýsting á borgaryfirvöld þess efnis að þetta verði svona á öllum almenningssalernum sem eru rekin af borginni. Vonandi taka einkafyrirtæki við sér líka. Þetta er í rauninni alveg jafn sjálfsagt og að hafa klósettpappír og sápu“.

Ronja fékk styrk frá heildsölunum Nathan & Olsen og Isam sem skaffa félaginu 500 túrtappa og dömubindi af lagerum sínum. Á fræðsluvikunni verður líka sýnt myndband sem félagið vann á göngum skólans.

 „Við gengum á milli krakka í skólanum og spurðum þau hvað þau vissu um blæðingar? Við ætlum svo að selja kökur, kex og svoleiðis dóteri. Svo vonandi verður haldið umræðukvöld líka,“ segir Una að lokum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×