Vilhjálmur vildi að Þórólfur segði af sér vegna ósannsögli 12. febrúar 2008 12:01
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, skoraði á Þórólf Árnason fyrrverandi borgarstjóra að segja af sér á sínum tíma, vegna tengsla hans við verðsamráð olíufélaganna. Þá sagði Vilhjálmur alvarlegt ef stjórnmálamenn segðu ekki satt. Karen Kjartansdóttir blaðamaður á Fréttablaðinu skrifar um framgöngu Vilhjálms í aðdraganda þess að Þórólfur Árnason, borgarstjóri Reykjavíkurlistans, sagði af sér embætti árið 2003. Þórólfur lá undir ámælum vegna fyrra starfa sinna hjá Olíufélaginu, sem varð uppvíst að verðsamráði með hinum stóru olíufélögunum og það samráð bitnaði m.a. á Reykjavíkurborg. Vilhjálmur sagði um Þórólf í Fréttablaðinu hinn 30. júlí 2003: „Hann er ekki að segja satt og rétt frá og vísa ég til hans eigin gagna því til stuðnings." Síðar segir Vilhjálmur: „Það er mjög alvarlegt mál þegar stjórnmálamenn segja ekki satt og rétt frá. Ég get einfaldlega sagt það að ef ég væri staðinn að svona löguðu þá myndi ég segja af mér. Hann verður hins vegar að gera þetta sjálfur upp við sína samvisku," segir Vilhjálmur. Í ágústmánuði tjáir Vilhjálmur sig aftur í Fréttablaðinu um stöðu Þórólfs. Hinn 22. ágúst er haft eftir Vilhjálmi: „Þórólfur segir að hann hafi bara fengið tölur frá forstjóranum og ekki vitað hvað hann var að skrifa undir. Það er nú ekki merkilegt svar," segir Vilhjálmur. Sjálfur hefur hann borið fyrir sig í REI-málinu að hann hafi ekki alltaf haft öll gögn og upplýsingar við hendina þegar hann tók ákvarðanir. Frá því að Vilhjálmur mælti þessi orð um Þórólf í júlí og ágúst 2003, leið rúmt ár þar til Þórólfur sagði síðan af sér. Hann tilkynnti afsögn sína hinn 9. nóvember 2004 og lét af embætti hinn 30. nóvember.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira