Innlent

Vilhjálmur: Viljum að sjómenn fái að sitja við sama borð og aðrir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá fundi deiluaðila hjá Ríkissáttarsemjara á dögunum.. Vilhjálmur er annar frá vinstri.
Frá fundi deiluaðila hjá Ríkissáttarsemjara á dögunum.. Vilhjálmur er annar frá vinstri. Vísir/Stefán
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og einn samningamanna sjómanna, segir að drög að nýjum kjarasamningi hafi legið fyrir seint í gærkvöld á fundi sjómanna og útvegsmanna hjá sáttasemjara. Vilyrði frá sjávarútvegsráðherra hafi verið það sem eftir hafi verið, og því hafi sjómenn ekki getað klárað nýjan samning.

„Það er þyngra en tárum taki eftir rúmlega tveggja mánaða verkfall og eina af erfiðustu vinnudeilum Íslandssögunnar skuli sjávarútvegsráðherra ekki hafa verið tilbúinn að liðka fyrir þessu réttlætismáli fyrir íslenska sjómenn. Ef ráðherrann hefði verið tilbúinn til þess hefði verið hægt að leggja kjarasamninginn í dóm sjómanna og ef hann yrði samþykktur væri flotinn kominn til veiða innan nokkra daga,“ segir Vilhjálmur á Facebook-síðu sinni.

Sem fyrr segir lauk samningafundi sjómanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi seint í gærkvöld, eða í kringum miðnætti, án niðurstöðu. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður í deilunni og eru samningaumleitanir því komnar í biðstöðu.

Vilhjálmur sendir neyðarkall til Alþingismanna að koma þessu máli í gegn þannig að sjómenn sitji við sama borð annað launafólk, hvað fæðiskostnað varðar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra ræddi við deilendur í gærkvöldi og sagði meðal annars að hratt yrði farið í að skoða fæðis- og dagpeninga á almennum vinnumarkaði með tilliti til skattaívilnana.

„Við höfum lagt okkur gríðarlega fram við að klára þessa erfiðu deilu því við gerum okkur svo sannarlega grein fyrir okkar ábyrgð við að ná að klára samning þannig að hægt sé að kjósa um hann og koma tannhjólum sjávarútvegsins um hinar dreifðu byggðir landssins af stað á nýjan leik íslensku þjóðarbúi til heilla! Það verður hins vegar ekki gert ef þetta réttlætismál nær ekki í gegn,“ segir Vilhjálmur.

Færsluna í heild má finna hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Sjávarútvegsráðherra: Ekki þannig að menn stilli ríkinu upp við vegg á lokametrunum og segi „Komið með milljarðana“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, kveðst fyrst og fremst fara til fundar við sjómenn og útgerðarmenn í Karphúsinu í kvöld til þess að hlusta á deiluaðila. Rætt var við Þorgerði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem hún var nýlent á Reykjavíkurflugvelli eftir að hafa verið á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×