Innlent

Vildi frekar vera áfram á barnum en fara á slysadeild

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þó nokkrir voru teknir í nótt fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Þó nokkrir voru teknir í nótt fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Vísir/Kolbeinn Tumi
Tilkynnt var um tvær líkamsárásir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Í öðru tilfellinu vildi maðurinn sem ráðist var á ekki aðstoð lögreglu við að komast á slysadeild. Hann vildi frekar vera áfram á barnum. Sagðist hann þekkja til árásarmannsins og myndi koma upplýsingum til lögreglu um málið síðar.  

Þá voru nokkrir teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, meðal annars par sem var handtekið á stolnum bíl sem búið var að setja röng skráningarnúmer á.

Þá var tilkynnt um mann sem var að skemma bíl í miðbænum. Áður hafði verið tilkynnt um manninn þar sem hann slóst við konu í leigubíl en þegar lögregla kom á vettvang var konan farin. Maðurinn gisti fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×