Fótbolti

Vil fá ákveðin svör á Algarve

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Freyr á blaðamannafundinum í gær.
Freyr á blaðamannafundinum í gær. vísir/sigurjón
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari valdi 23 leikmenn í ferðina til Algarve. Andstæðingar íslenska liðsins þar eru mjög sterkir en stelpurnar munu mæta Noregi, Japan og Spáni.

Meiðsli hafa verið að herja á kvennalandsliðið. Hólmfríður Magnúsdóttir verður lengi frá, Margrét Lára Viðarsdóttir er nýfarin af stað eftir aðgerð og svo meiddist Dagný Brynjarsdóttir í baki. Margrét Lára og Dagný komast með út.

Þetta er í fjórða sinn sem Freyr fer með liðið á þetta mót. Í tvígang hefur liðið náð þriðja sæti og einu sinni varð liðið í áttunda sæti. Hann fór fram á að liðið myndi vinna mótið í fyrra en segir að úrslitin skipti ekki öllu máli núna.

„Ég er alltaf að prófa hópinn og hafði aldrei nálgast það áður með liðinu að ætla að vinna mót. Ég vildi sjá hvernig stelpurnar myndu bregðast við því,“ segir Freyr sem ætlar að nýta mótið núna til þess að undirbúa liðið sem best fyrir stóra mótið í sumar. „Ég mun aðeins fikta með taktík núna þannig að eftir mótið séum við ekki með neinar spurningar. Heldur að við getum keyrt beint áfram til að vera 100 prósent klár með liðið í sumar.“

Freyr prófaði að láta liðið spila 3-5-2 í Kína á dögunum og mun halda því áfram á Algarve.

„Ég vil að við náum aðeins betri tökum á 3-5-2. Við verðum að eiga það uppi í erminni. Við gætum nefnilega þurft að nota það á móti bæði Frökkum og Sviss á EM. Við verðum að klára það núna því ég get ekki gert það í leikjunum í apríl og júní. Ég mun láta liðið spila 3-5-2 í tveimur leikjum að minnsta kosti og kannski í þremur.“

Sóknarleikurinn er ákveðinn hausverkur án Hörpu Þorsteinsdóttur og Hólmfríðar Magnúsdóttur. Harpa skoraði tíu mörk í sex leikjum í undankeppni EM og var markahæst í undankeppninni.

„Þarna eru tveir lykilmenn í sóknarleiknum. Við þurfum að sjá hvort við getum leyst þetta í okkar kerfi innan frá eða hvort við þurfum hreinlega að breyta leikfræðinni aðeins. Ég vil fá þau svör núna en ekki síðar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×