Íslenski boltinn

Viktor Örn til KA | Keflvíkingar fá Aron

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viktor Örn Guðmundsson leikur með KA út leiktíðina.
Viktor Örn Guðmundsson leikur með KA út leiktíðina. Vísir/Daníel
Viktor Örn Guðmundsson hefur verið lánaður til 1. deildar liðs KA frá Fylki. Hann leikur með Akureyrarliðinu út tímabilið.

Viktor, sem gekk í raðir Fylkis frá FH í vetur, lék átta deildarleiki með Árbæjarliðinu í sumar.

Þá fengu Keflvíkingar miðvörðinn efnilega Aron Rúnarsson Heiðdal á láni frá Stjörnunni.

Aron hefur leikið með öðrum flokki Stjörnunnar í sumar, auk þess sem hann lék einn bikarleik með meistaraflokknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×