Handbolti

Viktor Gísli valinn besti markvörður Miðjarðarhafsmótsins

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Viktor Gísli valinn í úrvalslið mótsins.
Viktor Gísli valinn í úrvalslið mótsins. mynd/fésbókarsíða HSÍ
Íslenska U-17 ára landslið karla í handbolta keppti á sterku móti nú í janúar þar sem liðið hafnaði í fimmta sæti. Markvörður liðsins var besti markvörður mótsins.

Viktor Gísli Hafsteinsson sem vakið hefur mikla athygli með Fram í Olís-deild karla í handbolta í vetur stóð sig afar vel á mótinu. Viktor Gísli varði meðal annars 17 skot í leiknum um 5. sætið þegar Ísland skellit Póllandi 26-17.

Íslenska liðið vann alla leiki sína á mótinu fyrir utan annan keppnisdag þegar liðið tapaði fyrir Þýskalandi og Ítalíu. Flesta leiki sína vann Ísland á sannfærandi máta.

Þýskaland vann mótið eftir úrslitaleik við Spán. Frakkland vann Ítalíu í leiknum um bronsið.

Ásamt Viktori Gísla voru þrír Spánverjar, Frakki, Ítali og Þjóðverji í úrvalsliði mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×