Fótbolti

Víkingur Ólafsvík gefst ekki upp

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Víkingur á enn smá von
Víkingur á enn smá von vísir/anton
Víkingur Ólafsvík vann öruggan 3-0 sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í 1. deild karla í fótbolta í dag. Víkingur eygir enn von um sæti í Pepsí deildinni næsta sumar.

Leikmenn Víkings vissu að ÍA vann sigur á Leikni fyrr í dag og því var ekkert annað en sigur í boði fyrir liðið.

Það tók Víking aðeins tvær mínútur að komast yfir og eftir tíu mínútna leik var staðan orðin 2-0 og þannig stóð í hálfleik.

Þrettán mínútum fyrir leikslok skoraði Víkingur þriðja og síðasta mark leiksins og gerði endanlega út um leikinn.

Víkingur er fimm stigum á eftir ÍA þegar fjórar umferðir eru eftir og níu stigum á eftir Leikni. Víkingur þarf að vinna alla leiki sína sem eftir eru til að eiga einhverja möguleika á sæti í Pepsí deildinni að ári.

Tindastóll er lang neðst í deildinni með 3 stig í 18 leikjum og er fallið í 2. deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×