Fótbolti

Víkingarnir sem sjokkeruðu Ronaldo | Sjáðu umfjöllun Roger Bennett um Ísland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Samsett
Roger Bennett, annar stjórnanda Men in Blazers, hefur nú sett saman þátt um íslenska fótboltalandsliðið fyrir VICE Sports og bætist þar með í hóp þeirra sem hafa fjallað um íslenska fótboltaævintýrið.

Flest hitt efnið kom fram í dagsljósið í aðdraganda Evrópumótsins en Roger Bennett setti sitt innslag í loftið daginn áður að Ísland mætir Austurríki í lokaleik riðlakeppninnar þar sem sigur eða jafntefli skilar íslenska liðinu áfram í sextán liða úrslitin.

Það er hinsvegar erfitt að finna flottari fyrirsögn á umfjöllun en þá hjá Roger Bennett á VICE Sports:

Innslagið heitir: „The Vikings Who Shocked Ronaldo: The Unbelievable Rise of Iceland Soccer" eða „Víkingarnir sem sjokkeruðu Ronaldo: Ótrúleg upprisa íslenska fótboltans."

Innslagið byrjar á viðtali við Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara.  „Við erum ekki með her því við erum of fá til að hafa her. Ef við færum í stríð þá væri auðvelt að vinna okkur. Þetta lið er eiginlega okkar her," sagði Heimir í viðtalinu við Roger Bennett.

Roger Bennett kynnir Ísland inn sem litlu þjóðina sem rauk upp FIFA-listann og varð að fámennustu þjóð til að tryggja sig inn á stórmót í knattspyrnu karla. Á meðan má sjá myndbrot frá bæði 1-1 jafnteflinu við Frakkaland 1998 og tapleiknum á móti Færeyjum 2009 auk svipmynda frá hinni ótrúlegu náttúru Íslands.

Roger Bennett segist síðan hafa farið til Íslands til að ræða við leikmenn, þjálfara og stuðningsmenn til að finna út hvernig Íslendingar fóru að þessu.

Þarna eru viðtöl við Guðmund Benediktsson, Geir Þorsteinsson, Aron Einar Gunnarsson, Lars Lagerbäck, Gylfa Þór Sigurðsson svo einhverjir séu nefndir.

Það er hægt sjá þetta stórskemmtilega innslag Rogers Bennett hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×