Íslenski boltinn

Víkingar öruggir sigurvegarar í A-riðli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingur og KR komust í undanúrslitin í kvöld.
Víkingur og KR komust í undanúrslitin í kvöld. Vísir/Hanna
Víkingur og KR tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmóts karla í fótbolta.

Víkingar unnu 3-1 sigur á Fram og unnu með því A-riðilinn með tíu stig í húsi af tólf mögulegum.

Fram þyrfti sigur til að komast áfram eða treysta á það að ÍR tæki stig af KR. KR vann hinsvegar 3-1 sigur á ÍR og fylgir Víkingunum í undanúrslitin.

Örvar Eggertsson, Vladimir Tufegdzic og Viktor Örlygur Andrason skoruðu mörk Víkinga í kvöld en Alex Freyr Elísson jafnaði metin í 1-1 með marki úr vítaspyrnu.

Víkingar mæta Val í undanúrslitunum en KR spilar við Fjölni en Grafarvogspiltar unnu B-riðilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×