Handbolti

Vignir skoraði þrjú í jafntefli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir hefur byrjað tímabilið vel.
Vignir hefur byrjað tímabilið vel. Vísir/Ole Nielsen
Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk þegar Midtjylland gerði 23-23 jafntefli við Team Tvis Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Rasmus Porup var markahæstur í liði Midtjylland með fimm mörk en hann jafnaði leikinn á lokasekúndunni. Jørgen Rasmussen kom næstur með fjögur mörk.

Liðið situr í öðru sæti með sjö stig eftir fimm umferðir, tveimur stigum á eftir lærisveinum Arons Kristjánssonar í KIF Kolding.

Team Tvis Holstebro er hins vegar í 10. sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×