Handbolti

Vignir skoraði fjögur í tapi Holstebro

Dagur Lárusson skrifar
Vignir í leik með Íslandi.
Vignir í leik með Íslandi. vísir/getty
EHF bikarinn í handbolta hélt áfram að rúlla í dag með 3.umferð keppninnar og var meðal annars danska liðið Holstebro að spila en þar spilar Vignir Svararsson.

Holstebro fór í heimsókn til pólska liðsins KS Azoty-Pulawy en jafnræði var með liðunum framan að leik og var staðan í leikhlé 15-14 fyrir gestunum.

Í seinni hálfleiknum fór heimaliðið að taka völdin á vellinum en leikurinn var þó alltaf mjög jafn. Að lokum voru það heimamenn sem silgdu fram úr og unnu að lokum sigur 30-27.

Vignir Svavarsson kom mikið við sögu í liði Holsteberg en hann skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×