Handbolti

Vignir og félagar fóru illa að ráði sínu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir skoraði tvö mörk.
Vignir skoraði tvö mörk. vísir/valli
Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk þegar Team Tvis Holstebro gerði jafntefli, 31-31, við SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Vignir og félagar fóru illa að ráði sínu en þegar rúmar tvær mínútur voru eftir leiddu þeir með fjórum mörkum, 31-27.

Gestirnir skoruðu hins vegar síðustu fjögur mörk leiksins og tryggðu sér annað stigið.

Egill Magnússon lék ekki með Holstebro sem missti af tækifærinu til að nálgast topplið Aalborg. Holstebro er í 2. sæti deildarinnar með 29 stig, þremur stigum á eftir Aalborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×