Handbolti

Vignir nýtti öll skotin sín í sigri | Sigur hjá lærisveinum Arons

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. Vísir/Stefán
Vignir Svavarsson og Aron Kristjánsson fögnuðu báðir sigri í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, Vignir sem leikmaður HC Midtjylland og Aron sem þjálfari toppliðs KIF Kolding.

Vignir nýtti öll þrjú skotin sín og fékk enga brottvísun þegar HC Midtjylland vann 28-25 heimasigur á Odder Håndbold.

Lærisveinar Arons Kristjánssonar hjá KIF Kolding styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með 26-22 útisigri á Mors-Thy Håndbold. Þetta var fimmtándi sigur liðsins í sautján deildarleikjum í vetur.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir Mors-Thy Håndbold en Róbert Aron Hostert var ekki með liðinu í kvöld.

Daníel Freyr Andrésson fékk ekki að spreyta sig þegar lið hans SönderjyskE gerði 24-24 jafntefli á útivelli á móti GOG Håndbold.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×