Lífið

Vigdís Hauks keppir í fyndnasta manni heims

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
YouTube-notandi sem kallar sig siggibang hefur útbúið tæplega fimm mínútna langt myndband sem hann kallar Vigdís uppistandari.

Í myndbandinu keppir Alþingiskonan Vigdís Hauksdóttir í keppninni fyndnasti maður heims og er siggibang búinn að klippa mynd af Vigdísi inn á svið með Comedy Central-lógóinu.

Í myndbandinu segir Vigdís nokkrar fleygar setningar sem hún hefur látið út úr sér síðustu mánuði og heyrast áhorfendur hlæja óspart.

Myndbandið fer nú eins og eldur um sinu á internetinu og hefur verið horft á það rúmlega tvö þúsund sinnum á síðasta sólarhring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×