Erlent

Vígamenn ISIS sagðir leynast meðal flóttafólks

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar á varðbergi í Köln.
Lögregluþjónar á varðbergi í Köln. Vísir/EPA
Íslamska ríkið hefur komið vígamönnum fyrir meðal flóttafólks. Þannig hafi þeir komist til Evrópu. Hans-Georg Maassen, yfirmaður leyniþjónustu Þýskalands BfV, sagði þetta margsinnis hafa gerst og að verið væri að vinna að leiðum til að bera kennsl á þá.

„Við höfum margsinnis séð að hryðjuverkamenn hafa komist inn dulbúnir meðal flóttafólks. Þetta er raunveruleikinn sem öryggisstofnanir þurfa að eiga við,“ er haft eftir Maassen á vef Reuters.

Þjóðverjar eru sagðir hafa fengið rúmlega hundrað ábendingar um að vígamenn væru meðal flóttafólks í Þýskalandi. Fyrr í vikunni voru tveir menn frá Norður-Afríku handteknir í Þýskalandi, grunaðir um aðild að Íslamska ríkinu og skipuleggja hryðjuverk. Þeir bjuggu í skýlum fyrir flóttafólk.

Samkvæmt Reuters óttast Þjóðverjar hryðjuverkaárásir en Maassen hvatti þó til stillingar.

„Við búum við alvarlegt ástand og hættan á árás er töluverð. Öryggisstofnanir, leyniþjónustur og lögregla fylgjast grannt með og við drögum úr hættunni eins vel og við mögulega getum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×