Innlent

Viðvörunarstig vegna flugs hækkað í appelsínugult

Bjarki Ármannsson skrifar
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra.
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra. Vísir/Valli
Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig fyrir flug í appelsínugult vegna óvissunnar sem nú er í Bárðarbungu. Þetta var ákveðið eftir fund vísindamanna Veðurstofu og almannavarna í dag.

„Það kallar ekki á neinar stórar breytingar fyrir flugið, það er ekki verið að fella niður eða færa flug,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra. „Þetta kallar bara á það að menn fari að undirbúa sig meira fyrir næsta skref, ef af yrði.“

Veðurstofan tilkynnti í gær að miðað væri við gult stig á kvarða sínum, sem þýðir óvissustig. Samkvæmt kvarðanum þýðir appelsínugult stig auknar líkur á eldgosi. Næsta stig fyrir ofan appelsínugult er rautt, sem myndi þýða að eldgos væri yfirvofandi eða hafið.

„Þetta er upplýsingagjöf til flugheimsins, sem þýðir bara að menn þurfa að fara yfir sín plön, þá fyrst og fremst flugyfirvöld á Íslandi,“ segir Víðir.

Mælingar vísindamanna sýna áframhaldandi virkni í Bárðarbungu en engin merki eru um gos. Samkvæmt tilkynningu Veðurstofu er ekki hægt að útiloka að þessi virkni geti leitt til sprengigoss sem þá mundi valda jökulhlaupi og losun ösku út í andrúmsloftið. 

Víðir segir að ekki sé hægt að draga úr viðbúnaði almannavarna að svo stöddu. Næsti fundur almannavarna verður klukkan hálfsex í kvöld.



Hér fyrir neðan má sjá tíst frá notandanum @jardskjalftar sem birtir alla jarðskjálfta á landinu sem mælast stærri en tvö stig.


Tengdar fréttir

700 skjálftar frá miðnætti

Um 700 jarðskjálftar hafa mælst við Bárðarbungu frá því á miðnætti. Jarðeðlisfræðingur segir um sé að ræða stærstu jarðskjálftahrinu við Bárðarbungu í lengri tíma.

Stærsti skjálftinn til þessa

Jarðskjálfti upp á að minnsta kosti 3,8 stig varð í grennd við Kistufell í norð-vestanverðum Vatnajökli í nótt og er þetta sterkasti skjálftinn sem mælst hefur í hrinunni, sem hófst um helgina. Hann fannst meðal annars á Akureyri.

Bárðarbunga gæti valdið hamförum við Dettifoss

Almannavarnir lýstu í dag yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu sem staðið hefur yfir í Bárðarbungu frá því í nótt. Kvika er talin vera á hreyfingu í eldstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×