Skoðun

Viðspyrna fólksins

Helga Þórðardóttir skrifar

Nú er þingi lokið eftir mikil átök. Ríkisstjórnin var gerð afturreka með umdeild mál eins og makrílfrumvarpið og er það vel. Stjórnarandstaðan stóð í lappirnar og gaf ekkert eftir í þessu máli fyrir utan Bjarta framtíð sem ætlaði að samþykkja lokaútspil Sigurðar Inga Jóhannssonar, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra.



Þennan árangur ber fyrst og fremst að þakka mótspyrnu almennings og ýmissa hópa sem tóku þetta mál að sér. Þar vil ég helst nefna undirskriftasöfnun Þjóðareignar sem setti greinilega mikla pressu á stjórnvöld. Sóknarhópurinn, þverpólitískur hópur sem berst gegn kvótakerfinu, hóf baráttuna þegar átti að leggja fram sáttaleiðina og barðist ötullega gegn makrílfrumvarpinu.



Við í stjórnmálasamtökunum Dögun áttum okkar þátt í því að koma í veg fyrir þennan óskapnað. Dögun hélt fjölsóttan fund í Kópavogi um sjávarútvegsmál sem var um margt merkilegur. Dögun bauð öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi til fundarins til að segja frá stefnu sinni um sjávarútvegsmál. Við veittum mótspyrnu með því að skrifa ótal greinar og sendum á fjölmiðla og þingmenn.



Dögun sendi ítarlega umsögn um frumvarpið og jafnframt komum við upplýsingum um málið til erlendra aðila sem rannsaka spillingu. Dögun sendi bréf til Greco og Transparency International til þess að vekja athygli þeirra á því óréttlæti sem viðgengst í úthlutun veiðiheimilda. Þessi vinna var unnin af baráttufólki með ríka réttlætiskennd sem trúir á málstaðinn og vill ekki gefast upp fyrir óréttlætinu. Við vitum þó að björninn er ekki unninn og áfram þurfum við að veita mótspyrnu þegar þing kemur aftur saman í haust, því eingöngu var samið um „vopnahlé“ á þingi til að gefa þingmönnum sumarfrí.



Það er orðið mjög brýnt að fá nýja stjórnarskrá þar sem almenningur getur skotið málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það sama á við um minnihluta alþingismanna. Einn þriðji hluti þingsins ætti að geta skotið umdeildum málum til þjóðarinnar. Almenningur á að hafa lokaorðið í mörgum málum enda er valdið hans. Meirihlutavald á Alþingi án aðhalds hefur fært alltof stóran hlut auðlinda okkar til fárra. Því verður að linna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×