Viđrćđurnar dragast enn

Fréttablađiđ Erlent 08. febrúar 2012 03:30
Mótmćlin gegn nýju ađhaldsađgerđunum urđu ekki jafn fjölmenn og oft áđur, enda hafa fáir lengur efni á launalausum verkfallsdegi, auk ţess sem veđur var slćmt í gćr.
Mótmćlin gegn nýju ađhaldsađgerđunum urđu ekki jafn fjölmenn og oft áđur, enda hafa fáir lengur efni á launalausum verkfallsdegi, auk ţess sem veđur var slćmt í gćr. nordicphotos/AFP
Grísku stjórninni tókst ekki í gær, frekar en síðustu daga, að leggja lokahönd á nýja aðhaldsáætlun til að tryggja fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS. Almenningur í Grikklandi efndi til mótmæla um land allt í gær.

Viðræður grísku stjórnarinnar við lánardrottna, björgunarmenn og eigin flokksfélaga um nýjar aðhaldsaðgerðir og fjárhagsaðstoð hafa dregist á langinn dag eftir dag, þrátt fyrir mikla pressu. Litlar líkur þóttu til þess í gær að niðurstaða fengist, en vonast var til að hún lægi fyrir í dag.

Íbúar Grikklands héldu tugþúsundum saman út á götur í gær til að mótmæla nýjum aðhaldsáformum stjórnvalda, sem á hinn bóginn eru undir miklum þrýstingi frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fjárhagsaðstoð frá þeim fæst ekki fyrr en áætlun um niðurskurð og sparnað þykir orðin sannfærandi, en án fjárhagsaðstoðar kemst gríska ríkið í greiðsluþrot 20. næsta mánaðar.

Gríska stjórnin hefur verið treg til að fallast á frekari niðurskurð sem íþyngir almenningi, ofan á allar þær skattahækkanir, launalækkanir og aðrar aðgerðir sem meðal annars hafa aukið mjög á atvinnuleysi og fátækt í landinu.

Þriggja manna nefndin frá ESB, AGS og Seðlabanka ESB hefur á ströngum fundum síðustu vikuna krafist þess að dregið verði úr ríkisútgjöldum um 1,5 prósent af landsframleiðslunni, eða 3,3 milljarða evra. Heimildir grískra dagblaða fullyrtu að niðurstaðan yrði sú að sparnaðurinn verði 2,5 milljarðar evra og megnið af því, eða 1,1 milljarður evra, fáist með því að draga úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu.

Þjóðverjar og Frakkar hafa á síðustu dögum sett fram nýjar kröfur um að peningarnir frá ESB og AGS fari inn á sérstakan reikning, sem gríska stjórnin geti eingöngu notað til þess að greiða lánardrottnum sínum.

Traust evruríkjanna til Grikkja er greinilega af skornum skammti og talin þörf á að tryggja að gríska stjórnin noti ekki peningana í önnur verkefni ríkisins en þau að greiða niður skuldirnar.

Þetta vantraust stafar meðal annars af því að grísku stjórninni hefur ekki gengið sem skyldi að standa við fyrri sparnaðaráform sín. Þannig hafa metnaðarfull áform um sölu ríkiseigna, sem átti að skila miklu í ríkissjóðinn, ekki gengið eftir nema að litlum hluta – ekki síst vegna þess að eftirspurnin hefur engan veginn verið í samræmi við þær væntingar, sem stjórnin hafði.

Neelie Kroes, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, segir það reyndar ekki rétt að evrusamstarfið muni hrynja ef eitt ríki segir skilið við það.

„Það er alltaf sagt að ef einu ríki er leyft að fara út, ef það biður um það, að þá muni allt kerfið hrynja. En það er einfaldlega ekki rétt,“ sagði hún í viðtali við hollenskt dagblað. „Grikkir verða að átta sig á því að við Hollendingar og Þjóðverjar getum því aðeins boðið skattgreiðendum okkar upp á neyðaraðstoð handa Grikkjum ef raunveruleg merki sjást um vilja til góðra verka.“gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 26. maí. 2012 16:58

Ćtlar ađ endurvekja egypsku byltinguna

Fyrrverandi forsćtisráđherra Egyptalands, Ahmed Shafiq, sagđi í dag ađ hann muni reyna ađ ...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 15:10

Hillary ferđast um Skandínavíu

Hillary Clinton, utanríkisráđherra Bandaríkjanna, verđur á ferđ um Skandínavíu í nćstu vik...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 15:00

Handtökur í Aserbaídsjan

Leiđtogi stjórnarandstöđunnar í Asebaídsjan, Ali Kerimli, var handtekinn fyrr í dag í kjöl...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 12:52

Lagarde: Engin áform um ađ slaka á kröfum til Grikkja

Ekki verđur slakađ á kröfum til Grikkja varđandi niđurskurđ, segir Christine Lagarde, fram...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 11:02

Handtöku Breiviks lýst

Norskir lögreglumenn báru vitni í máli Anders Behring Breivik í Osló í gćr. Ţeir lýstu ţví...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 11:00

Íranar geta sett saman kjarnorkusprengjur

Íranar hafa á síđastliđnum fimm árum auđgađ ţađ mikiđ úran ađ ţeir geta nú sett saman um f...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 09:45

Blóđbađ í Sýrlandi

Ţjóđarráđiđ í Sýrlandi, stćrstu samtök andspyrnumanna í landinu, hafa fariđ fram á ađ Öryg...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 09:16

Skotárás í Finnlandi - mađurinn handtekinn

Piltur og stúlka létu lífiđ í skotárás í finnsku borginni Hyvinkaa í nótt, ţau voru bćđi á...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 05:00

Andstćđur mćtast í seinni umferđinni

Mohammed Morsi, forsetaefni Brćđralags múslima keppir ađ öllum líkindum viđ Ahmed Shafik, ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Blađamađur í kókaínsmygli

Blađamađur í Kaupmannahöfn, sem skrifađi um fíkniefnaviđskipti, hefur veriđ dćmdur í sex á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:40

Kattarkona í Ísrael tók ađ sér 550 ketti

Mađur frá Ísrael sótti um skilnađ frá eiginkonu sinni á dögunum. Slíkt ţykir nú varla frét...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Eitrađ fyrir skólastúlkum

Eitrađ var fyrir 120 skólastúlkum og ţremur kennurum ţeirra í skóla í Takhar í Afganistan ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:14

Ótrúlegir hćfileikar hjá kisa

Kötturinn Óskar hefur heldur betur slegiđ í gegn á internetinu síđustu daga en hann er gćd...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:40

Brć'đralag múslima segist hafa forystu

Talning atkvćđa er sumstađar hafin í Egyptalandi en kosiđ var um nýjan forseta landsins í ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:36

Ţingmenn slógust í ţingsal

Ţingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gćr. Slagsmálin brutust út á mill...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 09:14

Getnađarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli

Vísindamenn eygja nú möguleika á ţví ađ ţróa getnađarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafrćđi...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:53

Mörgćs á flótta handsömuđ í Tókíó

Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamađ mörgćs sem flúđi úr sćdýrasafni í Tókíó fyrir tvei...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 11:00

Ćtlar ekki ađ áfrýja dómi

Noregur Anders Behring Breivik mun ekki áfrýja fangelsisdómi yfir sér ef hann verđur úrsku...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:57

Hollande heimsćkir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mćtti óvćnt í heimsókn til Afganistan í morgun...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:00

Lćknast hrađar og síđur veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráđandi stöđu í sínum hóp verđa sjaldnar veikir og sár ţeirra ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 07:30

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kćrumál streyma inn vegna vandrćđagangs viđ markađsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báđa bóga

Bćđi stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróđir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúiđ heimabć s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Viđrćđurnar dragast enn