Tónlist

Viðræður um aðra stóra hátíð í Keflavík

Hljómsveitin Deerhoof spilaði á Airwaves-hátíðinni 2007.
Hljómsveitin Deerhoof spilaði á Airwaves-hátíðinni 2007. fréttablaðið/arnþór
Viðræður hafa átt sér stað um að halda tónlistarhátíðina þekktu All Tomorrow"s Parties á varnarliðssvæðinu í Reykjanesbæ í lok júní. Skipulagning hátíðarinnar hér á landi hefur staðið yfir frá árinu 2011.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins myndu sex til sjö erlendar hljómsveitir spila á hátíðinni, þar á meðal hin bandaríska Deerhoof, og yrðu um fimm þúsund miðar í boði. Einnig kæmu íslenskar hljómsveitir fram. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að hinar erlendu sveitirnar sem myndu á hátíðinni séu margar hverjar heimsfrægar. All Tomorrow"s Parties var fyrst haldin í Englandi árið 1999 sem mótvægi við stærri tónlistarhátíðir á borð við Reading. Oftast er það ein hljómsveit sem fær að stjórna dagskrá hátíðarinnar en sú verður ekki raunin hér á landi. Þegar All Tomorrow"s Parties verður haldin í Englandi í maí næstkomandi stjórnar bandaríska hljómsveitin TV On The Radio dagskránni. Hátíðin fór fram í Ástralíu helgina 16. og 17. febrúar. Þar stigu á svið My Bloody Valentine, Godspeed You! Black Emperor, Swans og fleiri bönd. Það yrði þá skammt stórra högga á milli í Reykjanesbæ í sumar því í byrjun júní verður tónlistarhátíðin Keflavík Music Festival haldin í annað sinn. Þar koma tíu erlendir og 140 innlendir flytjendur fram. Stærstu nöfnin verða rappararnir DMX og Tinie Tempah, auk hljómsveitarinnar Far East Movement. Á meðal íslensku flytjendanna verða Sóley, Skálmöld, Valdimar, Jón Jónsson, Bubbi Morthens og Blazroca.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×