Innlent

Viðbrögð helstu aðila: Sáttamáli um framfarir en ekki stöðnun

Frá undirrituninni í dag.
Frá undirrituninni í dag. MYND/Pjetur

Fjölmargir aðilar koma að undirritun stöðugleikasáttmálans sem var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu rétt fyrir klukkan tvö í dag. Við það tækifæri tjáðu ýmsir sig um samninginn og sagði Jóhanna Sigurðardóttir að um tímamótaviðburð væri að ræða. Aldrei hefði verið mikilvægara að undirrita slíkan sáttmálan en einmitt nú og hann væri lykilatriði í endurreisninni.

Við undirritunina var létt yfir mannskapnum en það voru aðilar vinnumarkaðarins ásamt ríkisstjórninni sem undirrituðu samninginn.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði að verkalýðshreyfingin hefði lagt mikið á sig við gerð þessa samnings og þakkaði gagnaðilum sínum kærlega fyrir samstarfið. Tiltók hann þá sérstaklega samstarfið við ríkisstjórnina sem hann sagði að hefði verið til fyrirmyndar, en hann væri þá að miða við samskipti við ríkisstjórnir fyrri ára í því sambandi.

Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambandsins sagðist vona að samningurinn myndi leiða til betri kjara og þá um leið betra lífs. Hann sagði þó að á endanum yrði það sagan sem myndi dæma um hversu vel þetta samkomulag myndi reynast.

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins sagði þetta vera sáttmála um framfarir en ekki stöðnun og sem slíkur væri hann mjög mikilvægur.

Hann sagði Samtök atvinnulífsins hafa lagt mikla áherslu á að árangur næðist í ríkisfjármálum og hömlum á gjaldeyrisviðskiptum yrði aflétt. Einnig sagði hann lykilatriði að vextir yrðu lækkaðir. Vilhjálmur sagði einnig að það væri sín von að þær hörmungaspár sem landsmenn stæðu nú frammi fyrir myndu ekki rætast en til þess væri sáttmálinn einmitt gerður, það er að segja til þess að koma í veg fyrir það.

Stöðugleikasáttmáli Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, SSF, Samtaka atvinnnulífsins, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.




Tengdar fréttir

Skrifað undir klukkan hálftvö

Undirritun Stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar hefur verið sett klukkan hálftvö. Fyrst stóð til að skrifa undir í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálf eitt í dag, því var síðan frestað til hálf tvö. Þá bárust fréttir þess efnis úr Forsætisráðuneytinu að undirritunin dagist fram á daginn. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt um að undirritunin verði í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálftvö.

Búið að skrifa undir stöðugleikasáttmálann

Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera segir þetta afara mikilvægan áfanga og veigamikla forsendu fyrir endurreisnarstarfinu á næstu misserum.

Jóhanna meinaði samningsaðilum að yfirgefa stjórnarráðið

Forsætisráðherra kallaði samningsaðila varðandi stöðugleika sátt á sinn fund í gærkvöldi og tilkynnti þeim að þeir fengju ekki að yfirgefa stjórnarráðið fyrr en samkomulag væri í höfn um nýjan stöðugleikasáttmála. Skattar hækka mikið á næsta ári en skattahækkanir verða allt að 45 prósent af aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að ná endum saman í ríkisfjármálum.

Stefnt að stöðugleikasáttmála í dag

Stefnt er að undirritun stöðugleikasáttmálans svokallaða í dag en stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar hafa fundað stíft síðustu daga og vikur.

Sáttmáli um nýja sókn í atvinnumálum

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með stöðugleikasáttmálanum hafi náðst breið samstaða allra aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkis um átak til að endurreisa efnahagslífið með fjölþættum aðgerðum.

Viðræðum slitið fyrir annarra hönd

„Forseti ASÍ og formaður SA ákváðu í beinni útsendingu að við hefðum slitið viðræðum,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem segir opinbera starfsmenn fráleitt hafa slitið viðræðum um stöðugleikasáttmála í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×