Fótbolti

Viðar Örn skorar og skorar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar Örn í leik með Malmö.
Viðar Örn í leik með Malmö. vísir/getty
Markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar, Viðar Örn Kjartansson, getur hreinlega ekki hætt að skora fyrir lið sitt, Malmö FF.

Viðar Örn var enn eina ferðina á skotskónum í kvöld er Malmö pakkaði Jönköpins Södra saman, 4-1.

Viðar Örn skoraði þriðja mark liðsins í kvöld og átti sinn þátt í því að liðið er komið aftur á topp sænsku úrvalsdeildarinnar.

Viðar Örn er nú búinn að skora þrettán mörk í sænsku deildinni á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×